![Nordic_normal - Fyrir archery.is](https://i0.wp.com/archery.is/prufa/wp-content/uploads/2021/09/Nordic_normal-Fyrir-archery.is_.png?resize=678%2C381&ssl=1)
NUM 2022 verður samkvæmt Finnska Bogfimisambandinu ekki haldið sem fjarmót 2022. Mótið verður haldið með venjulegu sniði í Kemi í Finnlandi 16-17 júlí.
Verið er að vinna í boðspakka mótsins (með frekari upplýsingum) og vonast er til að hann komi í þessum mánuði. Norðurlandafundur ætti einnig að vera síðar í febrúar þar sem frekari upplýsingar munu berast.
Allir á aldrinum 13-20 ára sem eru skráðir í íþróttafélög innan BFSÍ geta tekið þátt á mótinu. Skráning mun fara fram í gegnum íþróttafélögin.
Hægt er finna nánari upplýsingar um NUM á þessari síðu
NUM 2022 Finland Norðurlandameistaramót Ungmenna (13-20 ára U21-U18-U16))
Ef ykkur vantar einhverja aðstoð er einnig hægt að leita upplýsinga til Bogfimisambands Íslands bogfimi@bogfimi.is
Við viljum sjá sem flesta þátttakendur á mótinu og að þeir hafi gaman af því að taka þátt og bæta við lífreynslu í reynslubankann 😊