NUM 2022 Finland Norðurlandameistaramót Ungmenna (13-20 ára U21-U18-U16))

When

15/07/2022 - 17/07/2022    
All Day

Event Type

Nordic Youth Championships (NYCH) 2021, betur þekkt sem NUM (Nordiske Undoms Mesterskap), er verður haldið í Kemi í Finnlandi 15.07 – 17.07.2021

Venjulega er NUM haldið fyrstu helgina í Júlí, en mótið er haldið aðeins seinna en venjulega að þessu sinni vegna þess að IFAA EM í víðavangsbogfimi sem er haldið vikuni á undan í Finlandi.

Foreldrar eru meira en velkomnir að taka þátt í verkefninu og í raun væri hægt að segja að án þeirra aðstoðar og stuðnings við sín ungmenni væri ekki hægt að framkvæma þetta verkefni.

Upplýsingar um mótið eru komnar út og komnar inn á ianseo.net, þar er hægt að finna boðspakka mótsins og bráðabirgðadagskrá mótsins.

Líkleg dagskrá og skipulag:
Fimmtudagur 14 Júlí: Fljúga út.
Föstudagur 15 Júlí: Æfing og búnaðarskoðun
Laugardagur 16 Júlí: Undankeppni og útsláttarkeppni einstaklinga.
Sunnudagur 17 Júlí: Útsláttarkeppni liða (allir taka þátt í liða)
Mánudagur 18 Júli: Fljúga heim

Mælt er með því að keppendur félagana hafi keppt á að lágmarki einu Íslandsmóti utanhúss áður en þeir taka þátt á NUM, til að hafa einhverja reynslu af utandyramótum. Íslandsmót ungmenna utandyra eru almennt haldin (í júní) stuttu áður en NUM er haldið og frábært tækifæri fyrir þá sem hafa ekki reynslu að taka þátt á þeim líka. En allir sem aðildarfélög BFSÍ vilja senda er leyfilegt að taka þátt óháð því hvort að þeir hafa reynslu af utandyra mótum.

NUM er ekki hugsað sem mót með “fullri alvöru”. Mótið er hugsað sem reynslu mót og hittingur fyrir krakka á norðurlöndum. Ásamt því er þetta vettvangur fyrir bestu krakkana á norðurlöndum til þess að keppa um titil. Því er getustig keppenda mjög mismunandi og því mót sem er við hæfi allra ungmenna sem stunda bogfimi. Oftast byrja ungmenni á því að taka þátt á NUM til gamans og reynslu.

Áætlað er að litlar kröfur verði tengt Covid-19 á mótinu og við ferðina. En líklegt að þurfa bólusetningar vottorð til þess að ferðast til Finnlands. Ekki er áætlað að stríð Rússlands í Úkraínu muni hafa áhrif á mótið. M.v. upplýsingar 17.03.2022

Nýjustu reglur NUM Guide lines NBU English 2019

NUM – Norðurlanda meistaramót ungmenna.

  1. SKRÁNING:
    Skráning fer fram í gegnum íþróttafélögin. Hafið samband við aðildarfélagið ykkar til þess að taka þátt.
  2. LIÐSSTJÓRI FÉLAGS:
    Hvert félag sem sendir keppendur þarf að senda einn liðsstjóra fyrir félagið sem er samskipta aðili við fulltrúa BFSÍ og kemur upplýsingum til íþróttafólki síns félags.
  3. ÞJÁLFARAR:/FYLGDARFÓLK
    Það verður að vera einn ábyrgðarmaður (þjálfari/foreldri/liðsstjóri eða fylgdarmanneskja) per 4 ungmenni í U16 og U18 flokkum sem fara. Einstaklingurinn tekur ábyrgð á þeim keppendum í ferðinni og á keppnisvellinum. Einstaklingurinn þarf að vera 21 árs eða eldri. Yngri en 21 árs geta ekki alltaf ferðast með boga ein. Við erum að treysta mikið á að foreldrar séu almennt að fara með börnunum sínum og nota tækifærið og skipuleggja fríið í kringum NUM. Eða að vinna saman til að fylgja krökkunum á NUM.
  4. FULLTRÚI FRÁ BOGFIMISAMBANDI:
    Það verður einn fulltrúi á staðnum frá Bogfimisambandinu til að vera samskiptaaðili við mótshaldara, miðla upplýsingum til liðsstjóra félagana og aðstoða ef eitthvað kemur upp á, og kemur upplýsingum til liðsstjóra hvers félags. (aðstoð við skráningu, greiðslu og slíkt).
  5. FLUG:
    Allir sjá um að bóka sín eigin flug og koma sér á keppnisstaðinn (sum íþróttafélög ferðast saman sem hópur)
    Þegar búið er að bóka flug þarf að sækja um ferðaleyfi með boga. Félögin sjá um að sækja um slíkt leyfi fyrir sína keppendur. Þegar búið er að bóka flug sendið flug upplýsingar á félagið ykkar og þeir redda því (almennt er það lítið mál en gott að gera það snemma).
    (Bogarnir verða að vera skráðir á leyfinu á einstaklinginn sem ferðast með ungmennum)
  6. FERÐALEYFI BARNA ANNARA:
    Til að ferðast með börn annara þurfa foreldrar fylla út þetta leyfi og láta viðeigandi fylgdarmann hafa (samþykkt vegna ferðar barns til útlanda) https://island.is/utanlandsferdir-barna-undir-18-ara
  7. GISTING:
    Við mælum með því að þeir sem geta, bóki eigin gistingu þegar dagsetningar eru staðfestar til að geta bókað sem ódýrasta ferð og jafnvel að gera fjölskyldu frí úr ferðinni í leiðinni.
    Official accommodation (Gistingin) sem er hægt að bóka í gegnum mótshaldara er oftast tómt skóla/íþróttahús, koma þarf með eigin dýnur, svefnpoka eða svipað og um 20 manns per skólastofu, en það er mjög mismunandi milli móta.
    Almennt er gert ráð fyrir því að koma keppenda sem notfæra sér “official accommodation” sé á Föstudegi og för keppenda af mótinu sé á Sunnudagskvöldi. Við höfum venjulega verið að fljúga út á Fimmtudegi og heim á Mánudegi. Þeir sem bóka eigin gistingu geta að sjálfsögðu farið hvenær sem er út eða heim og ferðast um svæðið eða landið.
  8. ALDURSFLOKKAR:
    Á NUM eru 3 aldurs flokkar,
    Junior – U21 (18-19 og 20 ára)
    Cadet – U18 (17 og 18 ára)
    Nordic Cadet – U16 (13-14 og 15 ára)
    Aldurinn miðast við fæðingarár ekki fæðingardag. (þannig að ef þú ert 13 ára á árinu máttu keppa, ef þú ert 18 ára á árinu þó að þú sért 17 ára þegar mótið er haldið keppirðu í U21 – Junior)
    12 ára og yngri er meinuð þátttaka á mótinu samkvæmt reglum Norðurlandasambandins (BFSÍ ræður því ekki, okkur skylst að það tengist reglum Ólympíunefndarinnar í Noregi gagnvart heimiluðum keppnisaldri ungmenna þar og þannig sanngirni milli þjóðana og samhæfingu aldurs sem má keppa á milli ára í mismunandi löndum).
  9. LIÐAKEPPNI:
    Allir taka þátt í kynlausri (unisex) liðakeppni. Ef land er ekki með nægilegt magn keppenda í ákveðnum flokki til að búa til lið eða fylla í lið er aflögu einstaklingum safnað saman í “Nordic Team” svo að allir fái að taka þátt í liðakeppni. Þannig að munið að læra hvernig liðaútsláttur fer fram og hafa æft ykkur áður en þið farið 😉
  10. KEPPNISFÖT:
    Keppendur verða að vera í búningum íþróttafélagsins eða landsliðs búningi. (“All archers shall wear either club shirt or team shirt”). Hægt er að finna upplýsingar um landsliðsbúninginn á bogfimi.is og upplýsingar um félagsbúninga hjá félaginu. Norðurlandameistaramót ungmenna er skilgreint sem C – landsliðsverkefni hjá BFSÍ og við mælum með því að vera í C landsliðsbúningi á mótinu.
  11. KOSTNAÐUR:
    Þátttakendur skulu halda utan um kostnað vegna verkefnisins (bílaleigubílar, flug, gisting o.sv.frv.) og senda reikninga tengt því til BFSÍ beint bogfimi@bogfimi.is eða í gegnum íþróttafélagið sitt. Þetta er gert til þess að geta haldið utan um heildarkostnað þátttakenda tengt mótinu þar sem þetta er C-landsliðsverkefni, allir þátttakendur eru skráðir af BFSÍ til þátttöku og því tæknilega séð allir keppendur að keppa fyrir landslið.

Facebook síða Norðurlandasambandsins

Youtube síða Norðurlandasambandsins

Ef ykkur vantar einhverjar viðbótar upplýsingar eða hafið einhverjar spurningar ekki hika við að hafa samband við íþróttafélagið ykkar eða BFSÍ bogfimi@bogfimi.is, við viljum sjá sem flesta taka þátt á mótinu og hafa gaman af því 😉


Skor og þátttaka á fyrri NUM mótum.

NUM 2021 Fjarmót (Svíþjóð)

NYCH 2020 Svíþjóð (Aflýst vegna Covid-19)

NUM 2019 Danmörk

NUM 2018 Noregi

NUM 2017 Finlandi
Heildarúrslit 2017

NUM 2016 Danmörku
Heildarúrslit 2016

NUM 2015 Svíþjóð
Heildarúrslit 2015

NUM 2014 Noregi
Heildarúrslit 2014

Meðal fjöldi þátttakenda á NUM eftir boga- og aldursflokkum.

———————————————————–

 

Be the first to comment

Leave a Reply

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.