Eowyn Marie Mamalias í BF Hróa Hetti í Hafnarfirði endaði i 5 sæti með trissuboga kvenna liðinu á EM ungmenna í Lilleshall Bretlandi í gær.
Ítalía slær Ísland út af EM með heimsmetaleik í 8 liða úrslitum
Í dag var Eowyn að keppa í einstaklingskeppni á EM. Eowyn var í 25 sæti í undankeppni einstaklinga og mætti í sínum fyrsta útslætti Ipek Tomruk frá Tyrklandi sem var í 8 sæti í undankeppni mótsins. Ipek er reyndur keppandi og vann meðal annars brons á EM U21 innandyra fyrr á árinu í brons úrslitaleik gegn Önnu Maríu Alfreðsdóttir liðsfélaga Eowyn á mótinu. Ekki auðveldasti andstæðingur til að mæta í fyrsta leik. Leikurinn endaði 145-135 fyrir þeirri Tyrknesku og Eowyn því í 17 sæti í einstaklingskeppni á EM ungmenna.
Eowyn hefur sett miðið á EM innandyra í febrúar á næsta ári þar sem hún ætlar sér að komast í gull eða brons úrslitaleik með trissuboga kvenna U21 liðinu.
Almennt um mótið
Mögulegt er að fylgjast með úrslitum mótsins í heild sinni á ianseo.net
Mögulegt er að finna myndir af mótinu hér:
Íslensku keppendurnir á EM ungmenna fyrir BFSÍ (Bogfimisamband Íslands) eru eftirfarandi:
- Anna María Alfreðsdóttir – ÍF Akur Akureyri
- Eowyn Marie Mamalias – BF Hrói Höttur Hafnarfirði
- Freyja Dís Benediktsdóttir – BF Boginn Kópavogi
- Ragnar Smári Jónasson – BF Boginn Kópavogi
- Valgerður Einarsdóttir Hjaltested – BF Boginn Kópavogi
- Marín Aníta Hilmarsdóttir – BF Boginn Kópavogi
- Halla Sól Þorbjörnsdóttir – BF Boginn Kópavogi
Evrópumeistaramót ungmenna utandyra 2022 15-20 ágúst er haldið í Lilleshall Bretlandi sem er eitt af þrem National Training Centers í landinu. Mikil hitabylgja var áður en mótið hófst og hitastig fór allt upp í 40°, en þegar mótið hófst hafði hitabylgjan gengið yfir að mestu og hiti var almennt yfir 20° með regnskúrum á milli og litlum vindi.
300 keppendur úr 30 Evrópuþjóðum eigast við á mótinu í Bretlandi. Af þeim eru 7 keppendur frá Íslandi. Þetta er í fyrsta sinn sem Ísland tekur þátt í EM ungmenna utandyra í bogfimi, en fyrst var miðað á þátttöku á EM ungmenna utandyra 2020 en því móti var aflýst vegna kórónuveirufaraldursins.