Valgerður Einarsdóttir Hjaltested úr Bogfimifélaginu Boganum í Kópavogi endaði í 20 sæti með sveigboga kvenna landsliðinu á Evrópumeistaramótinu utandyra í Antalya Tyrklandi í vikunni. Hún endaði 70 sæti í einstaklingskeppni EM.
Í undankeppni einstaklinga var Vala ekki ánægð með fyrri umferðina 264 stig, en sátt við seinni umferð undankeppni sem var 287 stig. Vala endaði í 79 sæti með 551 stig í undankeppni EM, 104 keppendur halda áfram á EM í útsláttarleiki. Á EM í 104 manna leikjum mætti hún Charline Schwarz frá Þýskalandi. Þar náði sú Þýska sigrinum 6-0 og sló Völu út af EM. Vala endaði því í 70 sæti á EM í einstaklingskeppni.
Í undankeppni EM í liðakeppni skoruðu stelpurnar okkar í sveigboga kvenna liðinu 1606 stig og enduðu í 20 sæti í undankeppni. 24 efstu lið halda áfram á EM og okkar stelpur héldu því áfram í útsláttarkeppni EM. Þar mættu stelpurnar okkar Finnlandi í fyrsta leik í 24 liða úrslitum. Þar tóku Finnar sigurinn 6-0 og héldu áfram í 16 liða úrslit. Íslenska liði því slegið út (útsláttarkeppni) og enduðu í 20 sæti á EM. Stelpurnar okkar voru að skjóta fínt, en “úps” örvar í hverri umferð sem gerir sigur erfiðann.
Nánar er fjallað um EM og aðra keppendur í þessari frétt Bogfimisambands Íslands:
Undankeppni EM gekk vel, en leikirnir á EM ekki okkar keppendum í vil að þessu sinni




