Astrid Daxböck úr Bogfimifélaginu Boganum í Kópavogi endaði í 20 sæti með sveigboga kvenna landsliðinu á Evrópumeistaramótinu utandyra í Antalya Tyrklandi í vikunni. Hún endaði 80 sæti í einstaklingskeppni EM.
Í undankeppni einstaklinga endaði Astrid í 81 sæti með 455 stig í undankeppni EM, 104 keppendur halda áfram á EM í útsláttarleiki. Á EM í 104 manna leikjum mætti hún Reena Parnat frá Estonia. Þar náði Eistland sigrinum 6-0 og sló Astrid út af EM. Astrid endaði í 80 sæti á EM í einstaklingskeppni
Í undankeppni EM í liðakeppni skoruðu stelpurnar okkar í sveigboga kvenna liðinu 1606 stig og enduðu í 20 sæti í undankeppni. 24 efstu lið halda áfram á EM og okkar stelpur héldu því áfram í útsláttarkeppni EM. Þar mættu stelpurnar okkar Finnlandi í fyrsta leik í 24 liða úrslitum. Þar tóku Finnar sigurinn 6-0 og héldu áfram í 16 liða úrslit. Íslenska liði því slegið út (útsláttarkeppni) og enduðu í 20 sæti á EM. Stelpurnar okkar voru að skjóta fínt, en “úps” örvar í hverri umferð sem gerir sigur erfiðann.
Nánar er fjallað um EM og aðra keppendur í þessari frétt Bogfimisambands Íslands:
Undankeppni EM gekk vel, en leikirnir á EM ekki okkar keppendum í vil að þessu sinni



