Þingeyringurinn Auður Alma Viktorsdóttir tók sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil með stæl eftir jafntefli og bráðabana

Auður Alma Viktorsdóttir úr Skotíþróttafélag Ísafjarðar (SkotÍs – SFÍ) vann sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil kvenna á Íslandsmóti U18 í Bogfimisetrinu í Reykjavík um helgina. Auður gerði svo betur en það stuttu seinna á mótinu og tók sinn annan Íslandsmeistaratitil á ferlinum í keppni óháð kyni (allir Íslendingar, karlar, konur, kynsegin, etc.). Ekki amaleg ferð í bæinn að taka Íslandmeistaratitil kvenna og Íslandsmeistaratitil allra.

(Fyrir þá sem ekki þekkja til: Úrslitaleikur í berboga = 5 lotur, 2 stig fyrir að vinna lotu 2*5=10 stig í pottinum. Sá keppandi sem er fyrr að vinna 6 stig hefur því sigrað leikinn. Ef leikurinn endar í jafntefli 5-5, er bráðabani = einni ör skotið, sá sem hittir hærra skor sigrar leikinn. Ef báðir keppendur skjóta sama skor sigrar sá sem hitti nær miðju)

Úrslitaleikurinn um Íslandsmeistaratitil berboga U18 kvenna:

Gull úrslitaleikur berboga kvenna var án vafa spennandi. En þar mættust Auður Alma Viktorsdóttir SFÍ og Ragnheiður Íris Klein BFFH Hafnarfjörður.

Auður með 437 stig í undankeppni ÍM en Ragnheiður með 450 stig, það lítill munur í skori var á milli þeirra að það var nánast 50/50 á því hvor væri líklegri til að vinna úrslitaleikinn.

Auður vann fyrstu lotu leiksins 25-20 og leiddi því úrslitaleikinn 2-0. Ragnheiður jafnaði leikinn í annarri lotu með 24-23 sigri í lotunni og staðan því 2-2. Ragnheiður vann þriðju lotu 26-19 og tók forystuna 4-2. Auður vann fjórðu lotu 22-19 og jafnaði leikinn 4-4 og aðeins fimmta og loka lota leiksins eftir. Þar jöfnuðu stelpurnar lotuna 24-24, Auður þurfti 8 í skor á síðustu örinni til að jafna leikinn og knýja fram bráðabana og deildu því stigunum og staðan jöfn 5-5 og leiknum lokið.

Það þurfti því að beita bráðabana til að ákvarða sigurvegarann og hver myndi hreppa Íslandsmeistaratitil kvenna U18. Ragnheiður skaut fyrst í bráðabananum í 5 stig, Auður var síðari til að skjóta og negldi örinni glæsilega í fullkomið skor 10 stig og tók með því sigurinn í bráðabananum og því sigurinn í úrslitaleiknum 6-5 og tók sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil í íþróttinni.

Úrslitaleikurinn um Íslandsmeistaratitil berboga U18 (allir)

Auður náði einnig að vinna sig upp í úrslitaleik um Íslandsmeistaratitil allra. Þar náðu karlarnir ekki að stoppa Auði í undanúrslitum. En þar mættust aftur sömu keppendur í gull úrslitaleiknum, Auður og Ragnheiður. Greinlega sterkar berboga stelpur á Íslandi.

Stelpurnar byrjuðu fyrstu lotu úrslitaleiksins á því að jafna lotuna 24-24 og deildu því stigunum 1-1. Auður vann aðra lotu naumlega 25-24 og tók 3-1 forystu í leiknum. Ragnheiður svaraði og vann þriðju lotu 25-21 og jafnaði leikinn 3-3. Ragnheiður tók fjórðu lotuna 25-21 og því 5-3 forystu. Auður þurfti því að vinna fimmtu og síðustu lotuna til þess að knýja fram bráðabana til að eiga séns á titlinum, ef stelpurnar jafna síðustu lotuna endar leikurinn 6-4 í tapi fyrir Auði. Síðasta lotan var mjög jöfn og stelpurnar biðu spenntar eftir niðurstöðum dómara eins og sjá má á myndinni.

Auður náði sigrinum í síðustu lotunni með naumum mun 21-20, en það dugði til að vinna loka lotuna, taka 2 stigin og jafna leikinn 5-5. Það þurfti því aftur bráðabana og aftur á milli sömu tveggja keppenda til þess að ákvarða hver myndi hreppa Íslandsmeistaratitilinn óháð kyni (allra).

Í bráðabananum skutu báðar stelpurnar í 5 skorsvæðið. Því þurftu dómarar að meta hvor örin væri nær miðju til að ákvarða sigurvegara og það var ör Auðar. Auður tryggði sér því annan Íslandsmeistaratitil á sínum ferli og fyrsta titilinn óháð kyni.

Sýnt var beint frá gull úrslitaleikjunum á Archery TV Iceland Youtube rásinni hér:

Nánar er hægt að lesa um Íslandsmót U18 í frétt Bogfimisambands Íslands hér:

Íslandsmót U18 góð mæting og spennandi úrslit