Vala með flotta frammistöðu í Slóveníu

Valgerður Einarsdóttir Hjaltested (Vala) úr BFB Kópavogi var að keppa á Veronicas Cup World Ranking Event í Kamnik í Slóveníu í vikunni.

Vala stóð sig fínt í undankeppni mótsins og endaði í 36 sæti með 557 stig.

Í útsláttarleikjum einstaklinga mætti Vala í fyrsta leik (48 manna leikjum (1/24)) stelpu frá Sviss. Leikurinn var mjög jafn en Vala var að skjóta betri og stöðugri skor eins og sjá má á myndinni og tók sigurinn mætti kalla nokkuð örugglega 7-3 og hélt því áfram í 32 manna úrslit.

Í 32 manna úrslitum sveigboga kvenna mættust Vala og Lili frá Ungverjalandi. Leikurinn var jafn, en övarnar röðuðust ekki í umferðum í hag Völu og hún tapaði því leiknum 6-0 og var slegin út af mótinu.

Vala endaði því akkúrat í miðju í lokaniðurstöðum sveigboga kvenna á mótinu í 26 sæti af 52 keppendum, sem er bara flott á heimslistamóti.

Ísland skipaði engum liðum á Veronicas Cup og því tók Vala ekki þátt í liðakeppni á mótinu.

Góð framför hjá Völu og líklega ekki langt í að hún fari að ná lágmarksskorum fyrir Evrópuleika (600 stig)