Ewa í 33 sæti á Veronicas Cup

Ewa Ploszaj úr BFB Kópavogi var að keppa á Veronicas Cup World Ranking Event í Kamnik í Slóveníu í vikunni.

Ewa var í 33 sæti í undankeppni mótsins með 600 stig.

Í útsláttarleikjum einstaklingar endaði hún í 33 sæti trissuboga kvenna eftir að vera slegin út af keppanda frá Sameinuðu furstadæmunum í 48 manna leikjum (1/24)

Ísland skipaði engum liðum á Veronicas Cup og því tók Ewa ekki þátt í liðakeppni á mótinu.

Langt síðan Ewa hefur keppt fyrir Ísland, enda verið í pásu frá íþróttinni um nokkuð skeið, en kannski að snúa aftur núna?