Þórdís með brons á Veronicas Cup

Þórdís Unnur Bjarkadóttir úr BFB Kópavogi vann brons í trissuboga kvenna U21 á Veronicas Cup World Ranking Event í Kamnik í Slóveníu í vikunni.

Þórdís stóð sig flott í undankeppni mótsins og endaði í 3 sæti með 674 stig, sem er yfir lágmarksviðmiðum fyrir Ólympíuleika sem er 670 (þó að það hafi lítið með þetta mót að gera þá er það alltaf góður samanburður). Þórdís náði svo bronsinu í leik á móti stelpu frá Tyrklandi í útsláttarkeppni einstaklinga.

Engin liðakeppni er fyrir U21 flokka á Veronicas Cup og því tók Þórdís ekki þátt í liðakeppni á mótinu.

Þórdís flýgur af Veronicas Cup beint yfir til Búlgaríu á Evrópubikarmót ungmenna að keppa. Sjáum hvort að hún næli í fleiri verðlaun fyrir Ísland þar 😉