Þórður Emil Íslandsmeistari langboga U16

Þórður Emil Söruson úr BFB Kópavogi vann tvo Íslandsmeistaratitla á Íslandsmóti U16 í langboga í dag.

  • Íslandsmeistari Langboga U16 (óháð kyni) – Þórður Emil Söruson BFB
  • Íslandsmeistari Langboga karla U16 – Þórður Emil Söruson BFB

Samkeppnin er að sjálfsögðu mest um langboga titilinn (óháð kyni), þar sem að konur, karlar og allir keppa um þann titil, því væri hægt að kalla það “aðal titilinn”. Þar lagði Þórður andstæðing sinn Völu L.A. Daníelsdóttir úr LFF Reykjavík 7-1 í gull úrslitaleiknum.

Nánar er hægt að lesa um Íslandsmót U16 í frétt Bogfimisambands Íslands hér:

Fullkomið skor á Íslandsmóti U16