Óliver Aldar Felixsson úr BFB Kópavogi vann alla þrjá Íslandsmeistaratitla á Íslandsmóti U16 í berboga sem honum stóðu í boði í dag. Karla, unisex og í félagsliðakeppni.
- Íslandsmeistari Berboga U16 (óháð kyni) – Óliver Aldar Felixson BFB
- Íslandsmeistari Berboga U16 karla – Óliver Aldar Felixson BFB
- Íslandsmeistari Berboga félagsliðakeppni U16 – BF Boginn
- Kai Milo
- Óliver Aldar Felixson
Samkeppnin er að sjálfsögðu mest um berboga titilinn (óháð kyni), þar sem að konur, karlar og allir keppa um þann titil, því væri hægt að kalla það “aðal titilinn”.
Spennandi úrslit voru í berboga U16 (óháð kyni) þar sem Óliver Aldar Felixsson BFB jafnaði leikinn 5-5 í undanúrslitum gegn Eygló Midgley BFHH og tók svo sigurinn í bráðabana 9-6 og hélt því í gull úrslit.
Óliver endurtók það svo í gull úrslitum með 5-5 jafntefli og tók sigurinn í bráðabana 9-8 gegn Kai Milo BFB. Óliver er greinilega mikill bráðabana maður 😆
Nánar er hægt að lesa um Íslandsmót U16 í frétt Bogfimisambands Íslands hér: