Ragnar Smári með frábæra frammistöðu á Evrópubikarmótinu í Tyrklandi

Kópavogsmaðurinn Ragnar Smári Jónasson endaði í 10 sæti í liðakeppni og 25 sæti í einstaklingskeppni á Evrópubikarmóti (EB) í meistaraflokki í Antalya í Tyrklandi. (European Grand Prix – EGP). Ásamt því sló Ragnar 5 Íslandsmet og var hann fyrstur Íslendingar til þess að hljóta fjólubláa markbogfimi pinnann, sem er æðsta árangursviðurkenning innan World Archery.

Ragnar sem er á síðasta ári í U21 flokki (20 ára) náði 700 í skori í undankeppni Evrópubikaramótsins í meistaraflokki, sem er frábær frammistaða. 700 stig í undankeppni er einnig skorviðmið alþjóðabogfimisambandsins World Archery fyrir æðstu árangursviðurkenningu World Archery, fjólubláa markbogfimi pinnann, sem er aðeins veittur íþróttamanni einu sinni á ævinni og aðeins 118 (karlar og konur) hafa fengið þá viðurkenningu áður. 700 hefði til samanburðar nettað Ragnari 2 sæti í undankeppni EM U21 árið 2024.

Ragnar endaði í 21 sæti í undankeppni Evrópubikarmótsins í Tyrklandi í meistaraflokki núna. 104 efstu einstaklingar og 24 lið halda áfram eftir undankeppni.

Útsláttarkeppni einstaklinga: 5 umferðir af 3 örvum (15 örvar) sá sem skorar hærra vinnur leikinn. Ef skorið er jafnt er bráðabani skotið einni ör, sá sem er nær miðju vinnur og heldur áfram í næsta leik o.s.frv. þar til einn stendur eftir sem sigurvegari mótsins.

Frammistaða Ragnars í undankeppni Evrópubikarmótsins var næg til þess að hann sat hjá og hélt beint í 32 manna úrslit EB. Þar mættust Ragnar og Marco Morello frá Ítalíu sem hefur áður unnið bæði heimsmeistara og Evrópumeistaratitil í víðavangsbogfimi.

Leikurinn byrjaði jafn 29-29, Marco tók 1 stigs forskot í annarri umferð 29-28. Í þriðju umferð jafnaði Ragnar leikinn með 29-28 leik og staðan jöfn 86-86. Marco tók svo fullkomna umferð 30 á móti 28 frá Ragnari og tók tveggja stiga forystu 116-114. Marco tók svo aðra fullkomna umferð 30 sem gerði ómögulegt fyrir Ragnar að vinna upp 2 stiga muninn og Ragnar skoraði 26 í ólukku umferð. Marco hélt því áfram í 16 manna úrslit og Ragnar var sleginn út og endaði í 31 sæti.

Ragnar og Þórdís voru slegin út í 16 liða úrslitum í blandaðri liðakeppni gegn Lúxemborg í leik sem var 50/50 hver myndi vinna þar sem að liðin voru nánast jöfn í undankepppni EB. Tapið var sárt 153-151 þar sem Ísland átti 3 örvar á línu sem allar voru dæmdar sem lægra skorið og leikurinn hefði auðveldlega geta farið í vil Íslands. En þannig er það bara dagslukkan/formið, skjóta bara betri tíur í framtíðinni svo að enginn vafi sé á hvað skorið er 😉. Lúxemborg náði að vinna sig upp í gull úrslitaleik EB með því að vinna svo annað hæsta liðið í undankeppni Þýskaland í bráðabana 152-152 (19-18) í 8 liða úrslitum og svo Ítalíu 152-151 í undanúrslitum. Þau keppa því á móti Tyrklandi um gull úrslitum. Alltaf gaman að sjá smáþjóða frændur ná árangri, þó að við hefðum að sjálfsögðu frekar viljað sjá Ísland vinna leikinn gegn þeim og ná í gull úrslitin frekar.

Ragnar og Þórdís slógu einnig Íslandsmet U21 í blandaðri liðakeppni (mixed team) bæði í undankeppni og úrslitaleikjum, ásamt því að slá meistaraflokks metið í blandaðri liðakeppni í undankeppni meistaraflokks og jafna Íslandsmetið í úrslitaleikjum meistaraflokks. Semsagt öll Íslandsmetin í blandaðri liðakeppni slegin eða jöfnuð, gífurlega sterkt par þarna á ferðinni, sem eru bæði ung (Ragnar 20 ára og Þórdís 18 ára).

Miðað við frammistöðu Þórdísar og Ragnars þá er í raun ekki spurning um hvort að þau munu vinna til verðlauna í meistaraflokki á EM og EB heldur hvenær. En þau teljast bæði sem ungmenni enþá og einbeita sér því mest að ungmenna mótum. Trissuboga blandaðri liðakeppni verður einnig í fyrsta sinn á Ólympíuleikum 2028 og hefur verið á Evrópuleikum frá 2019, því vel líklegt að þau gætu unnið þátttökurétt fyrir Ísland á ÓL í framtíðinni og jafnvel fyrstu verðlaun Íslands á Evrópuleikum í náinni framtíð.

700 stig er einnig skorið sem þarf að ná til þess að fá hæstu árangursviðurkenningu heimssambandsins World Archery, fjólubláa markbogfimi pinnann. BFSÍ hefur þegar sótt um viðurkenninguna fyrir Ragnar til World Archery og áætlað að framkvæmdastjóri World Archery veiti viðurkenninguna í næstu viku.

Almennt eru færri en 10 nýjir íþróttamenn á heimsvísu sem ná þeim árangri ár hvert og sú viðurkenning er aðeins veitt einu sinni á ævi íþróttamanns. Samtals hafa 118 keppendur (bæði konur og karlar) hlotið viðurkenninguna frá framkvæmdastjóra World Archery frá því að hún var veitt fyrst (í rúmlega 30 ár sem viðurkenningin hefur verið veitt). Það er því engin vafi á því að Ragnar er mikið afreksefni og afreksmaður sem þarf að styðja við og sem við munum vafalaust sjá árangur frá í framtíðinni.

Ragnar náði þessu skori án þess að skora fullkomna umferð!!! Nánast allar umferðirnar voru 59 eða 58, sem er óvenjuleg og skondin tilviljun.

Evrópubikarmótið var fyrsta landsliðsverkefni Ragnars í meistaraflokki (A/B). Ragnar er tvítugur og hefur því mest einbeitt sér að ungmennaflokkum hingað til. Til að ná öllum árangri sem mögulegt er þar, enda er maður ekki ungur að eilífu og Ragnar getur keppt í meistaraflokki það sem eftir er af ævinni.

Ragnar er því ekki á heimslista World Archery að svo stöddu. En þar sem að hann er að koma á aldur þar sem að áherslan verður mest á meistaraflokk þá er ekki ólíklegt að við sjáum Ragnar rjúka upp heimslistann á næstu árum.

  • Engin stig eru gefin á heimslista fyrir árangur í ungmenna landsliðsverkefnum (ekki einu sinni HM/EM/YOG/EOYF)
  • Engin stig eru gefin á heimslista fyrir Norðurlandamót, Smáþjóðaleika eða nein slíkt lítil alþjóðleg mót.
  • Engin stig eru gefin á heimslista fyrir árangur á landsmótum landa og annarra smærri móta.
  • Engin stig eru gefin á heimslista til þeirra sem komast ekki áfram eftir undankeppni landsliðsverkefna
  • Stig á heimslista eru aðeins gefin til þeirra sem komast áfram eftir undankeppni á hæsta stigi íþróttarinnar í meistaraflokki:
    • ÓL/EL (hver þjóð getur max átt 1 keppanda á þeim mótum)
    • HM/EM (hver þjóð getur max átt 3 keppendur á þeim mótum)
    • HB/EB (hver þjóð getur almennt max átt milli 3-6 keppendur á þeim mótum. Mismunandi þar sem einnig gefin stig fyrir heimsálfumótaraðir annarra heimsálfa)

Stig á heimslista fyrnast á 2 árum. Semsagt 2 árum eftir viðkomandi stórmóti lýkur er niðurstöðunum þess eytt út af heimslista og einstaklingum sem hafa ekki keppt á æðsta stigi íþróttarinnar síðustu 2 ár er þá eytt út af listanum líka. Þrátt fyrir það eru yfir 1200 íþróttamenn skráðir á heimslista í trissuboga karla í dag. Semsagt 1200 trissuboga karlar hafa keppt á æðsta stigi trissuboga karla á síðustu 2 árum. Ragnar er ekki einn af þeim þar sem þetta er fyrsta alþjóðlega stórmótið hans í meistaraflokki og hann mun vera nýr inn á heimslistann.

https://bogfimi.smugmug.com/2026-EGP-Antalya/i-TZ85NNN/A

 

Við köllum Ragnar Kópavogsmann þar sem erfitt er að gera annað þegar að amma og afi í báðar ættir eru úr og búa í Kópavogi. Í orðum eins afa Ragnars “Við erum frumbyggjar Kópavogs”.

Íslandsmet sem Ragnar sló:

  • Ragnar Smári Jónasson BFB – Íslandsmet trissuboga karla undankeppni meistaraflokkur – 700 stig, metið var áður 687 stig
  • Ragnar Smári Jónasson BFB – Íslandsmet trissuboga karla U21 – 700 stig, metið var áður 687 stig
  • Landsliðsmet undankeppni meistaraflokkur trissuboga blandað lið (1kk+1kvk)  – 1370 stig, metið var áður 1339 stig frá árinu 2022
    • Þórdís Unnur Bjarkadóttir BFB
    • Ragnar Smári Jónasson BFB
  • Landsliðsmet undankeppni U21 trissuboga blandað lið (1kk+1kvk) – 1370 stig, metið var áður 1322 stig frá árinu 2024
    • Þórdís Unnur Bjarkadóttir BFB
    • Ragnar Smári Jónasson BFB
  • Jafnað landsliðsmet útsláttarkeppni meistaraflokkur trissuboga blandað lið (1kk+1kvk) – 151 stig , metið er 151 stig frá árinu 2017
    • Þórdís Unnur Bjarkadóttir BFB
    • Ragnar Smári Jónasson BFB
  • Landsliðsmet undankeppni U21 trissuboga blandað lið (1kk+1kvk) – 151 stig, metið var áður 149 stig frá árinu 2024
    • Þórdís Unnur Bjarkadóttir BFB
    • Ragnar Smári Jónasson BFB

Fjallað er nánar um Evrópubikarmótið í þessari frétt frá Bogfimisambandi Íslands

Ragnar framúrskarandi á Evrópubikarmótinu í Antalya Tyrklandi