Þórdís Unnur ver Íslandsmeistaratitilinn í fjórða sinn í röð

Þórdís Unnur Bjarkadóttir úr BF Boganum í Kópavogi vann sinn annan Íslandsmeistaratitil kvenna utandyra og fjórða titil sinn í röð í meistaraflokki kvenna (innandyra 2025/2026, utandyra 2025/2026) á Íslandsmeistaramótinu utandyra 20 júní síðastliðinn í Fagralundi Kópavogi. Ásamt því vann hún Íslandsmeistaratitil félagsliða og sló tvö félagsliðamet með félagsliði sínu.

Undankeppni ÍM trissuboga á laugardegi:

Þórdís var efst í undankeppni ÍM bæði í kvenna, óháð kyni og í félagsliðakeppni. Þórdís skoraði 673 stig sem er 3 stigum hærra en lágmarksskor ÓL28. Það setti hana í sterka stöðu til að taka titlana þó að lítill munur væri á efstu keppendum í skori í undankeppni ÍM.

Keppni um einstaklings Íslandsmeistaratitilinn trissuboga kvenna:

Þórdís var efst í undankeppni ÍM og sat því hjá þar til í undanúrslitum. Þar mættust Þórdís og Elísabet Fjóla Björnsdóttir úr sama félagi og Þórdís BFB. Þar tók Þórdís nokkuð öruggann sigur 138-134, þó að Fjóla hafi staðið sig mjög vel í leiknum þrátt fyrir vindinn.

Þórdís hélt því í gull úrstlitaleikinn þar sem hún mætti Önnu Maríu Alfreðsdóttir úr Íþróttafélaginu Akri á Akureyri sem var í öðru sæti í undankeppni ÍM. Töluverður vindur var að hrella keppendur í úrslitaleikjunum sem gerði aðstæður krefjandi.  Anna byrjaði hærri í fyrstu lotu úrslitaleiksins 27-26, en Þórdís náði að snúa því við í annarri umferð 29-26 og staðan í leiknum því 55-53. Þórdís náði svo að hækka forskotið sitt um 3 stig í þriðju umferð og staðan 81-76. Anna náði að saxa niður forskotið aftur í fjórðu umferð 105-103, en Þórdís náði að halda forskotinu og tók sigurinn 131-124 í leiknum og sinn annan Íslandsmeistaratitil í röð utandyra og fjórða í röð í meistaraflokki kvenna.

Eowyn Marie Mamalias tók bronsið gegn Elíasbet Fjólu Björnsdóttir 127-122, báðar úr BFB Kópavogi.

Keppni um einstaklings Íslandsmeistaratitilinn trissuboga óháð kyni:

Þórdís átti nokkuð auðvelda vegferð í gegnum útsláttarkeppni í 16 manna og 8 manna úrslitum. En í undan úrslitum mætti hún liðsfélaga sínum Ragnari Smári Jónassyni, í fjórðu umferð leiksins var aðeins 1 stig sem skyldi þau að 119-120, en Ragnar tók sigurinn í síðustu umferð 138-134.

Þórdís fór því í brons úrslitaleikinn þar sem að hún mætti verjandi titilhafa í trissuboga óháð kyni frá 2025 Alfreð Birgissyni úr Íþróttafélaginu Akri á Akureyri sem hafði verið sleginn út óvænt út í undanúrslitum af nýliða á sviðinu Hieu Quang Tran úr BFB Kópavogi. Alfreð byrjaði brons úrslitin yfir með 29-28 umferð og jók forskotið í annarri umferð í 57-55. Í þriðju umferð skoraði Þórdís 29 á móti 26 frá Alfreð og snéri leiknum við í 1 stigs forkot fyrir Þórdísi 84-83. Þau jöfnuðu fjórðu umferð 27-27 staðan 111-110 og aðeins ein umferð eftir. Þar náði Þórdís 28 á móti 27 frá Alfreð og tók því sigurinn með 2 stigum 139-137 og bronsið á ÍM óháð kyni og tryggði að allur verðlaunapallurinn væru Kópavogsmenn þar sem Ragnar Smári Jónasson tók titilinn á móti Hieu Quang Tran sem tók silfrið.

Keppni um Íslandsmeistaratitilinn í félagsliðakeppni trissuboga:

Aðeins tvo efstu lið í undankeppni ÍM halda áfram í útsláttarleiki í félagsliða og fara því beint í gull úrslitaleik. Þar mættust tvö efstu lið Bogfimifélagsins Bogans í Kópavogi. Þar sem að aðal lið Bogans vann öruggann sigur á liði 2 212-164 og liðsmennirnir Þórdís, Ragnar og Magnús tóku því titilinn og Hieu, Eowyn og Elísabet tóku silfrið.

Samantekt af árangri:

  • Íslandsmeistari trissuboga kvenna – Þórdís Unnur Bjarkadóttir – BF Boginn Kópavogi
    • Silfur Anna María Alfreðsdóttir ÍFA
    • Brons Eowyn Marie Mamalias BFB
  • Íslandsmeistari trissuboga óháð kyni – Ragnar Smári Jónasson – BF Boginn Kópavogi
    • Silfur Hieu Quang Tran
    • Brons Þórdís Unnur Bjarkadóttir
  • Íslandsmeistari trissuboga félagsliða – Lið Bogfimifélagsins Bogans í Kópavogi
    • Liðsmenn
      • Þórdís Unnur Bjarkadóttir
      • Ragnar Smári Jónasson
      • Magnús Darri Markússon
  • Bogfimifélagið Boginn – Íslandsmet Trissuboga félagsliða undankeppni meistaraflokkur 2004 stig – Metið var áður 1967 stig frá 2024 og BFHH Hafnarfirði átti það met
    • Liðsmenn
      • Magnús Darri Markússon
      • Þórdís Unnur Bjarkadóttir
      • Ragnar Smári Jónasson
  • Bogfimifélagið Boginn – Íslandsmet Trissuboga félagsliða útsláttarleikur meistaraflokkur 212 stig – Metið var áður 199 stig frá 2024 og BFHH Hafnarfirði átti það met
    • Liðsmenn
      • Magnús Darri Markússon
      • Þórdís Unnur Bjarkadóttir
      • Ragnar Smári Jónasson
  • Þórdís Unnur Bjarkadóttir BFB (18 ára) skoraði 673 stig sem er 3 stigum yfir lágmarkskorum Ólympíuleika fyrir trissuboga konur og var einni hæsta skor allra keppenda á ÍM26 óháð kyni. En á ÓL er aðeins er keppt í parakeppni á ÓL í trissuboga, ekki í einstaklingskeppni og þar sem bæði Þórdís og Ragnar Smári Jónasson hafa náð lágmarksskorum á árinu 2026 gætu þau verið contenders fyrir mögulegt ÓL sæti 2028. En of snemmt að spá fyrir um það, en möguleikinn er til staðar.

Mögulegt er að sjá nánari upplýsingar um ÍM í fréttum á bogfimi.is

Kópavogsmenn unnu alla fjóra Íslandsmeistaratitlana á ÍM trissuboga utandyra 2026