Hieu Quang Tran úr BF Boganum í Kópavogi kom mikið á óvart á Íslandsmeistaramótinu utandyra 20 júní síðastliðinn í Fagralundi Kópavogi. Þar sem hann tók Íslandsmeistaratitil karla og var ekki langt frá því að taka einnig Íslandsmeistaratitilinn óháð kyni þar sem hann tók silfur og tók silfur í félagsliðakeppni með liði 2 frá BF Boganum í Kópavogi.
Frábær frammistaða á sínu fyrsta Íslandsmeistaramóti. En Hieu er ekki óvanur keppni þar sem hann stundaði íþróttina í Austurríki áður en hann flutti til Íslands tengt skóla, vinnu og fjölskyldu.
Undankeppni ÍM trissuboga á laugardegi:
Hieu var í fjórða sæti í undankeppni karla á ÍM og 6 sæti í undankeppni óháð kyni á ÍM. Skorið hans var gott 653 stig en margir hærri en hann sem voru taldir líklegri til að taka sigurinn á ÍM, þó að ekkert sé útilokað.
Keppni um einstaklings Íslandsmeistaratitilinn trissuboga karla:
Hieu vann leik sinn í 8 manna úrslitum 138-133 og mætti svo Alfreð Birgissyni úr Íþróttafélaginu Akri á Akureyri sem var annar hæstur í undankeppni og hafði unnið titilinn síðustu 4 ár í röð, Hieu var því underdog í leiknum. Hieu byrjaði yfir 29-28, Alfreð snéri því við í annarri umferð í 57-55, strákarnir jöfnuðu þriðju umferð 86-84, Hieu náði svo að snúa leiknum við í 1 stig forskot 113-112 og strákarnir jöfnuð svo síðustu lotuna 29-29 og lokaskorið því 142-141, Hieu hélt því áfram í gull úrslitaleikinn og braut sigurröð Íslandsmeistaratitla Alfreðs í fjögurra ára sigurröð, sem er lengsta skráða sigurröð titla í trissuboga karla.
Hieu mætti í gull úrslitaleiknum Magnús Darra Markússyni einnig úr BFB Kópavogi, en hvorki Magnús né Hieu höfðu áður unnið Íslandsmeistaratitil í meistaraflokki en höfðu báðir náð að sigra margfalda Íslandsmeistara í undanúrslitum með 1 stigi. Það var því ljóst að reynsluboltarnir myndu keppa um bronsið á meðan annar hvor þeirra myndi vinna Íslandsmeistaratitil í meistaraflokki í fyrsta sinn. Vindurinn var að hrella þá báða í úrslitaleiknum og Hieu byrjaði yfir 26-23 í fyrstu umferð, Magnús jafnaði muninn 29-26 og staðan 52-52. Hiue náði 29 á móti 28 frá Magnúsi og eins stigs forskoti 81-80 í þriðju umferð. Strákarnir jöfnuðu fjórðu umferð 26-26 og staðan 107-106. Í síðustu umferð leiksins átti Magnús ólukku umferð 22 á móti frábærri umferð frá Hieu 29 stig, lokastaðan því 136-128 og Hieu tók því Íslandsmeistaratitil karla í fyrsta sinn á sínu fyrsta Íslandsmóti. Ekki amalegt það.
Keppni um einstaklings Íslandsmeistaratitilinn trissuboga óháð kyni:
Í útsláttarleikjum um Íslandsmeistaratitilinn óháð kyni vann Hieu örugglega í 16 manna úrslitum 138-116, í 8 manna úrslitum mætti hann aftur Magnúsi Darra Markússyni úr BF Boganum. Magnús var 3 sætum hærri í undankeppni ÍM og Hieu því talinn underdog leiksins. Magnús byrjaði með 6 stiga forskot 58-52 eftir fyrstu tvær umferðir en átti svo mjög laka þriðju umferð þar sem munurinn saxaðist niður í 1 stig. Strákarnir jöfnuðu svo fjórðu umferð og staðan 110-109 Magnúsi í vil. Hieu átti svo góða loka umferð 29 á móti 26 frá Magnúsi og Hieu tók því sigurinn 138-136 og hélt í undan úrslit.
Í undan úrslitum mætti hann aftur Alfreð Birgissyni úr Íþróttafélaginu Akri á Akureyri. Hieu byrjaði yfir í leiknum en Alfreð náði að vinna upp muninn og leikurinn endaði í jafntefli og því þurfti bráðabana til að ákvarða sigurvegarann. Þar skaut Hieu 10 á móti 8 frá Alfreð og Hieu tók því sigurinn og hélt aftur í gull úrslitin en að þessu sinni um titilinn óháð kyni.
Í gull úrslitum mætti hann Ragnari Smára Jónassyni einnig úr BFB Kópavogi. Ragnar byrjaði yfir í leiknum 29-26, strákarnir jöfnuðu aðra umferð 28-28 og Ragnar hélt því forskotinu. Hieu náði að saxa eitt stig af 3 stiga forskoti Ragnars í þriðju umferð 29-28 og staðan í leiknum 85-83. Hieu náði svo fullkominni umferð 30 á móti 29 frá Ragnari og saxaði annað stig af forskotinu og staðan 114-113. Strákarnir jöfnuðu svo síðustu lotuna 29-29 og Ragnar tók því sigurinn 143-142 og titilinn og Hieu tók silfrið. Þórdís Unnur Bjarkadóttir úr BFB Kópavogi tók bronsið á móti Alfreði Birgissyni 139-137.
Keppni um Íslandsmeistaratitilinn í félagsliðakeppni trissuboga:
Aðeins tvo efstu lið í undankeppni ÍM halda áfram í útsláttarleiki í félagsliða og fara því beint í gull úrslitaleik. Þar mættust tvö efstu lið Bogfimifélagsins Bogans í Kópavogi. Þar sem að aðal lið Bogans vann öruggann sigur á liði 2 212-164 og liðsmennirnir Þórdís, Ragnar og Magnús tóku því titilinn og Hieu, Eowyn og Elísabet tóku silfrið.
Samantekt af árangri:
- Íslandsmeistari trissuboga karla – Hieu Quang Tran – BF Boginn Kópavogi
- Silfur Magnús Darri Markússon BFB
- Brons Alfreð Birgisson ÍFA
- Íslandsmeistari trissuboga óháð kyni – Ragnar Smári Jónasson – BF Boginn Kópavogi
- Silfur Hieu Quang Tran
- Brons Þórdís Unnur Bjarkadóttir
- Silfur í félagsliðakeppni
Mögulegt er að sjá nánari upplýsingar um ÍM í fréttum á bogfimi.is
Kópavogsmenn unnu alla fjóra Íslandsmeistaratitlana á ÍM trissuboga utandyra 2026




