Ragnar Smári Íslandsmeistari allra en ekki karla

Ragnar Smári Jónasson úr BF Boganum í Kópavogi vann sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil óháð kyni á Íslandsmeistaramótinu utandyra 20 júní síðastliðinn í Fagralundi Kópavogi. Ásamt því vann hann Íslandsmeistaratitil félagsliða og sló tvö félagsliðamet með félagsliði sínu.

Keppni um einstaklings Íslandsmeistaratitilinn trissuboga óháð kyni:

Ragnar átti nokkuð auðvelda vegferð í gegnum útsláttarkeppni í 16 manna, 8 manna úrslitum og undan úrslitin voru nokkuð örugg 138-134 líka. Ragnar hélt því í gull úrslitaleikinn með lítilli mótstöðu.

Í gull úrslitum mætti Ragnar liðsfélaga sínum úr BFB Kópavogi Hieu Quang Tran. Ragnar byrjaði yfir í leiknum 29-26, strákarnir jöfnuðu aðra umferð 28-28 og Ragnar hélt því forskotinu. Hieu náði að saxa eitt stig af 3 stiga forskoti Ragnars í þriðju umferð 29-28 og staðan í leiknum 85-83. Hieu náði svo fullkominni umferð 30 á móti 29 frá Ragnari og saxaði annað stig af forskotinu og staðan 114-113. Strákarnir jöfnuðu svo síðustu lotuna 29-29 og Ragnar tók því sigurinn 143-142 og sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil óháð kyni og Hieu tók silfrið. Þórdís Unnur Bjarkadóttir úr BFB Kópavogi tók bronsið á móti Alfreði Birgissyni 139-137.

Keppni um einstaklings Íslandsmeistaratitilinn trissuboga karla:

Ragnar vann sig auðveldlega í gegnum 8 manna úrslit en í undan úrslitum mætti Ragnar liðsfélaga sínum hinum 15 ára Magnúsi Darra Markússyni sem hefur verið á gífurlegri uppleið í íþróttinni og sló U18 Íslandsmetið á mótinu, og nokkuð ljóst að leikurinn gæti verið nokkuð jafn. Magnús byrjaði fjórum stigum yfir eftir fyrstu þrjár umferðir 84-80. Ragnar náði að saxa á forskotið um 1 stig í fjórðu lotu og 2 stig í síðustu lotu, en það var ekki nóg og Magnús tók sigurinn 139-138 og hélt í úrslitaleikinn á meðan Ragnar hélt í brons úrslitaleik karla.

Í brons úrslitum mættust Ragnar og Alfreð Birgisson úr ÍF Akri á Akureyri sem hafði Íslandsmeistaratitil karla síðustu 4 ár í röð. Þar byrjaði Ragnar leikinn illa á meðan Alfreð var að skjóta mjög vel og Alfreð tók öruggann sigur 141-133 og tók bronsið. Ragnar endaði því í 4 sæti í karla.

Þannig að sú undarlega staða kom upp þar sem að Ragnar er Íslandsmeistari allra (óháð kyni) en ekki Íslandsmeistari karla. Svona getur íþróttin verið upp og niður á milli leikja 😉

Keppni um Íslandsmeistaratitilinn í félagsliðakeppni trissuboga:

Aðeins tvo efstu lið í undankeppni ÍM halda áfram í útsláttarleiki í félagsliða og fara því beint í gull úrslitaleik. Þar mættust tvö efstu lið Bogfimifélagsins Bogans í Kópavogi. Þar sem að aðal lið Bogans vann öruggann sigur á liði 2 212-164 og liðsmennirnir Þórdís, Ragnar og Magnús tóku því titilinn og Hieu, Eowyn og Elísabet tóku silfrið.

Samantekt af árangri:

  • Íslandsmeistari trissuboga óháð kyni – Ragnar Smári Jónasson – BF Boginn Kópavogi
    • Silfur Hieu Quang Tran
    • Brons Þórdís Unnur Bjarkadóttir
  • 4 sæti karla
  • Íslandsmeistari trissuboga félagsliða – Lið Bogfimifélagsins Bogans í Kópavogi
    • Liðsmenn
      • Þórdís Unnur Bjarkadóttir
      • Ragnar Smári Jónasson
      • Magnús Darri Markússon
  • Bogfimifélagið Boginn – Íslandsmet Trissuboga félagsliða undankeppni meistaraflokkur 2004 stig – Metið var áður 1967 stig frá 2024 og BFHH Hafnarfirði átti það met
    • Liðsmenn
      • Magnús Darri Markússon
      • Þórdís Unnur Bjarkadóttir
      • Ragnar Smári Jónasson
  • Bogfimifélagið Boginn – Íslandsmet Trissuboga félagsliða útsláttarleikur meistaraflokkur 212 stig – Metið var áður 199 stig frá 2024 og BFHH Hafnarfirði átti það met
    • Liðsmenn
      • Magnús Darri Markússon
      • Þórdís Unnur Bjarkadóttir
      • Ragnar Smári Jónasson

Mögulegt er að sjá nánari upplýsingar um ÍM í fréttum á bogfimi.is

Kópavogsmenn unnu alla fjóra Íslandsmeistaratitlana á ÍM trissuboga utandyra 2026