Þórdís Unnur Norðurlandameistari annað árið í röð!

Þórdís Unnur Bjarkadóttir úr BF Boganum Kópavogi keppti með landsliði á Norðurlandameistarmóti Ungmenna í Tampere Finnlandi.

Þórdís tók Norðurlandameistaratitilinn í einstaklingskeppni, Norðurlandameistaratitilinn í liðakeppni, setti Norðurlandametið í undankeppni liða og setti Norðurlandametið í útsláttarleik liða.

Engar smá niðurstöður hjá Þórdísi, báðir titlarnir og bæði liðametin á sínu fyrsta NUM í U21 flokki, eftir að hafa unnið U18 titilinn árið áður.

Útsláttarleikir einstaklinga

Þórdís endaði í 2 sæti í undankeppni trissuboga U21 á NM ungmenna með 664 stig. Þórdís skoraði nægilega hátt í undankeppni NM til þess að vera pre-seeded beint í undanúrslit.

Í undan úrslitum mættust Þórdís og Adele Storlev frá Noregi sem var í 3 sæti í undankeppni NM og úr varð jafn og spennandi leikur. Stelpurnar byrjuðu jafnar í fyrstu umferð 27-27 og endurtóku það í annarri umferð 27-27. Þórdís náði svo 1 stigs forskoti í þriðju umferð 27-26 og stelpurnar jöfnuðu svo aftur fjórðu umferð 29-29 og staðan í leiknum 110-109 fyrir Þórdísí og leikurinn búinn að vera hníf jafn og aðeins loka umferð leiksins eftir. Þar skein Þórdís með fullkomið 30 skor á móti 26 frá þeirri Norsku. Þórdís tók því sigurinn 140-135 og hélt í gull úrslitaleikinn annað árið í röð.

Í gull úrslitum mættust Þórdís og Sara Sjödahl frá Finnlandi sem var í öðru sæti undankeppni NM leikurinn var í beinni útsendingu í Finnsku sjónvarpi (og Archery TV Iceland Youtube rásinni) og búist við jöfnum og spennandi leik. Stelpurnar byrjuðu jafnar 26-26 í fyrstu umferð og endurtóku það í annarri umferð 28-28 og leikurinn því jafn 54-54 á leið í þriðju umferð. Sú Finnska átti laka þriðju umferð með 24 stig á móti 28 frá Þórdísi og Þórdís tók því 4 stiga forskot 82-78. Í fjórðu umferð náði Þórdís fullkominni umferð 30 á móti 28 frá Finnsku og jók forskotið í 6 stig! Þórdís endurtók það svo með annarri fullkominni umferð sem var betri en síðasta þar sem örvarnvar voru en nær miðju, á móti 27 frá Finnsku. Lokaniðurstöður 142-133 og Þórdís tók því öruggann sigur í gull úrslitum og tók Norðurlandameistaratitil einstaklinga annað árið í röð.

Útsláttarleikir liða

Nýlega var breytt í 2 manna liðakeppni á NM ungmenna. Ragnar Smári Jónasson og Þórdís Unnur Bjarkadóttir bæði úr BF Boganum í Kópavogi enduðu saman í liði sem lið 1 frá Íslandi sem var í 1 sæti í undankeppni NM (hvert land má skipa mörgum liðum á NM). Ragnar og Þórdís settu einni Norðurlandametið í liðakeppni með 1344 stig, þau enduðu nægilega hátt í undankeppni til þess að sitja hjá (vera pre-seeded) í undanúrslitin.

Í undanúrslitum mættust Íslands (Ragnar og Þórdís) og aðallið Svíþjóðar sem var í 4 sætí undankeppni og úr varð harður bardagi sem kom á óvart. Svíþjóð byrjaði yfir 37-35 eftir fyrstu umferð. Ísland náði að minnka muninn í annarri umferð í 1 stig með 38-37 umferð og staðan í leiknum 74-73 fyrir Svíþjóð. Liðin jöfnuðu þriðju umferð 37-37 og Ísland því enþá einu stigi undir 111-110 og aðeins lokaumferð leiksins eftir. Þar náði Ísland að snúa leiknum við með 36-33 umferð og unnu því leikinn 146-144 og hélt því í gull úrslitaleikinn.

Í gull úrslitaleiknum mættust Ísland og aðallið heimaþjóðarinnar Finnlands sem var í 3 sæti í undankeppni NM. Finnar voru nýbúnir að setja Norðurlandametið í útsláttarleik liða með 150 stig í undanúrslitum og því gert ráð fyrir að bardaginn yrði harður. En svo var ekki og Ísland vann örugglega 151-139 og settu nýtt Norðurlandamet í leiðinni. Finnar gerðu mistök í fyrstu umferð og skutu einni ör á rangt skotmark, en Finnarnir voru samt sáttir við tapið af því að þeir töpuðu með meira en 10 stiga mun, þannig að það hefði engu máli skipt hvort að örin þeirra hefði lent í 10 á réttu skotmarki, þeir hefðu samt tapað leiknum. En svona er þetta allt getur gerst. En Ísland vann leikinn 151-139 (151-148 ef að örin hefði lent á réttri skífu) og Þórdís og Ragnar tóku því Norðurlandameistaratitil liða.

Norðurlandameistaratitill og bæði Norðurlandametin, er hægt að gera betur en það?

Nánar er fjallað um NM ungmenna í þessari frétt frá Bogfimisambandi Íslands.

Ragnar, Þórdís og Lóa skara fram úr – Fjórir Norðurlandameistaratitlar og tvö Norðurlandamet á NM ungmenna

Áfram Ísland!!