Lóa Margrét Hauksdóttir keppti með landsliði á Norðurlandameistarmóti Ungmenna í Tampere Finnlandi og Norðurlandameistaratitilinn, sinn fyrsta og endaði 6 sæti í liðakeppni.
Útsláttarleikir einstaklinga
Í undankeppni NUM 2026 endaði Lóa í 4 sæti með 498 stig í berboga kvenna U21 . Það var mjög lítill skor munur skar að efstu 6 stelpurnar í undankeppni mótsins og því ljóst að hörð og spennandi keppni yrði um einstaklings Norðurlandameistaratitilinn
Lóa var nægilega hátt sett í undankeppni NM til þess að sitja hjá í 16 manna úrslitum og hún hélt því beint í 8 manna úrslit.
Í 8 manna úrslitum mættust Lóa og Elin Persson frá Svíþjóð sem var í 5 sæti undankeppni NM. Sú Sænska tók fyrstu lotu leiksins 24-21, Lóa svaraði með því að taka aðra lotu 17-13 og stelpurnar því jafnar 2-2. Lóa tók þriðju lotu naumlega 20-19 og sú Sænska tók fjórðu lotu 24-21 og jafnaði leikinn aftur 4-4 og aðeins ein lota eftir af leiknum. Sú lota var gífurlega jöfn og endaði 25-24 fyrir Lóu. Lóa tók því sigurinn í 8 manna úrslitum 6-4 í mjög jöfnum leik og hélt því áfram í undanúrslit.
Í undanúrslitum mættust Lóa og Amelia Reinwalds frá Svíþjóð sem var efst í undankeppni NUM. (Svíþjóð er líklega sterkasta berboga þjóð í heimi). Lóa tók fyrstu lotu leiksins 25-21 og sú Sænska svaraði með því að taka aðra umferð naumlega 25-24 og staðan því 2-2 í leiknum. Stelpurnar jöfnuðu þriðju lotu 23-23 og staðan 3-3. Sú Sænska náði fjórðu lotu 18-16 og staðan 5-3. Lóa varð því að vinna síðustu lotuna til þess að jafna leikinn og knýja fram bráðabana, sem hún gerði 22-14 og leikurinn endaði því 5-5 jafntefli, því þurfti bráðabana til að brjóta jafnteflið, ein ör sá sem hittir nær miðju heldur áfram í gull úrslitaleikinn. Þar skaut sú Sænska 7 og Lóa 9, Lóa tók því sigurinn ég hélt í gull úrslitaleikinn og sú Sænska hélt í brons úrslitaleikinn.
Í gull úrslitaleiknum mættust Lóa og Ellika Rashidi Stahlberg frá Svíþjóð (að sjálfsögðu) í beinni útsendingu í Finnsku sjónvarpi (og á Archery TV Iceland Youtube rásinni). Lóa byrjaði gull úrslitaleikinn með því að taka fyrstu lotu 26-16, sú Sænska vann aðra lotu 27-17 og jafnaði leikinn aftur 2-2. Lóa tók þriðju lotu 23-21 og leiddi 4-2, og endurtók svo leikinn í fjórðu lotu 26-14 og Lóa tók því sigurinn í leiknum 6-2 og sinn fyrsta Norðurlandameistaratil á ferlinum.
Útsláttarleikir liða
Nýlega var breytt í 2 manna liðakeppni á NM ungmenna. Lóa Margrét Hauksdóttir úr BF Boganum í Kópavogi og Kristjana Rögn Andersen úr SkotÍs Ísafirði enduðu saman í liði sem lið 1 frá Íslandi sem var í 6 sæti í undankeppni NM (hvert land má skipa mörgum liðum á NM).
Í 8 liða úrslitum mættu krakkarnir okkar liði 2 frá Svíþjóð sem var í öðru sæti undankeppni NM (já Svíjar áttu 3 sterkustu liðin á NM, enda hryllilega sterk berbogaþjóð. Þegar að heimsmetum í berboga var bætt við á heimsþinginu 2021 djókaði framkvæmdastjóri heimssambandsins upp í pontu að “það væri bara svo Svíjarnir gætu tekið þau”). Krakkarnir okkar áttu því fjall að klífa gegn Svíjum í 8 liða úrslitum. Svíjar tóku fyrstu lotu með naumum mun 27-26, aðra lotu 26-16 og þriðju lotu 25-18 og Svíjar tóku því sigurinn 6-0 og krakkarnir okkar enduðu í 6 sæti liða á NUM 2026. Gaman er að geta að lið 2 frá Svíþjóð sem sigraði krakkana okkar vann á endanum titilinn á mótinu.
Nánar er fjallað um NM ungmenna í þessari frétt frá Bogfimisambandi Íslands.
Áfram Ísland!!



