Ragnar Smári Jónasson úr BF Boganum Kópavogi keppti með landsliði á Norðurlandameistarmóti Ungmenna í Tampere Finnlandi.
Ragnar tók Norðurlandameistaratitilinn í einstaklingskeppni, Norðurlandameistaratitilinn í liðakeppni, setti Norðurlandametið í undankeppni liða, setti Norðurlandametið í útsláttarleik liða, jafnaði Norðurlandametið í undankeppni einstaklinga og jafnaði Norðurlandametið í útsláttarleik einstaklinga.
Engar smá niðurstöður hjá Ragnari, báðir titlarnir, bæði liðametin og bæði einstaklingsmet jöfnuð á sínu síðasta NM ungmenna, þar sem að elsti aldursflokkur á NM ungmenna er U21 og hann verður 20 ára á árinu.
Ragnar keppti fyrst á NUM árið 2022 og hefur unnið 6 silfur í einstaklings og liðakeppni (aldrei í gull úrslitum gegn sama einstaklingi eða liði samt) og þessi gull verðlaun í einstaklings og liðakeppni sem hann vann á NM ungmenna í ár var því langþráður draumur sem hann hafði lengi beðið eftir á meðan að “silfur álögin” vofðu yfir honum.
Útsláttarleikir einstaklinga
Ragnar endaði efstur í undankeppni trissuboga U21 á NM ungmenna og jafnaði núverandi Norðurlandamet 680 stig sem Aleksej Skovlyst frá Danmörku setti árið 2025 (ein sterkasta trissuboga þjóð í heimi). Ragnar er orðinn það hátt settur í íþróttinni að hann er andstæðingurinn sem menn höfðu orð á að vilja síst þurfa að mæta í útsláttarkeppni.
Ragnar skoraði nægilega hátt í undankeppni NM til þess að vera pre-seedaður beint í undanúrslit.
Í undan úrslitum mættust Ragnar og Johannes Asparlund frá Svíþjóð. Þar gerði Ragnar sér lítið fyrir og jafnaði Norðurlandametið í útsláttarleik einstaklinga með 143 stig sem Nicklas Bredal Bryld setti árið 2024. Sá Sænski átti engin svör við því og skoraði aðeins 116 stig í leiknum. Öruggur sigur 143-116 og jafnað Norðurlandamet og Ragnar hélt því í gull úrslitaleikinn.
Í gull úrslitum mættust Ragnar og Leo Werner frá Svíþjóð í beinni útsendingu í Finnsku sjónvarpi (og Archery TV Iceland Youtube rásinni). Sá leikur var gífurlega jafn og spennandi. Ragnar byrjaði undir 27-28 og strákarnir jöfnuðu aðra umferð 28-28 og þriðju umferð 29-29 og staðan í leiknum því 85-84 fyrir þeim Sænska sem var að skjóta sitt besta. Ragnar náði forskoti Svíjans niður 29-28 og jafnaði leikinn 113-113 og aðeins ein umferð eftir af leiknum. Myndi Ragnar þurfa að sætta sig við enn annað silfrið á NUM? Sá Sænski skaut 28 og Ragnar skaut 28, jafntefli!! Þannig að leikurinn endaði í jafntefli 141-141 og því þurfti bráðabana til að ákvarða hver myndi sigra og taka Norðurlandmeistaratitilinn, ein ör sá sem hittir nær miðju vinnur. Sænski skaut 9 og Ragnar skaut X (10) aðeins 2 cm frá miðju skífunnar á 50m færi. Ragnar tók því sigurinn og sinn fyrsta Norðurlandameistaratitil í greininni (eins skrítið og það er að segja að þetta sé fyrsti titill Ragnars, en silfur álögin eru greinilega brotin)
Útsláttarleikir liða
Nýlega var breytt í 2 manna liðakeppni á NM ungmenna. Ragnar Smári Jónasson og Þórdís Unnur Bjarkadóttir bæði úr BF Boganum í Kópavogi enduðu saman í liði sem lið 1 frá Íslandi sem var í 1 sæti í undankeppni NM (hvert land má skipa mörgum liðum á NM). Ragnar og Þórdís settu einni Norðurlandametið í liðakeppni með 1344 stig, þau enduðu nægilega hátt í undankeppni til þess að sitja hjá (vera pre-seeded) í undanúrslitin.
Í undanúrslitum mættust Íslands (Ragnar og Þórdís) og aðallið Svíþjóðar sem var í 4 sætí undankeppni og úr varð harður bardagi sem kom á óvart. Svíþjóð byrjaði yfir 37-35 eftir fyrstu umferð. Ísland náði að minnka muninn í annarri umferð í 1 stig með 38-37 umferð og staðan í leiknum 74-73 fyrir Svíþjóð. Liðin jöfnuðu þriðju umferð 37-37 og Ísland því enþá einu stigi undir 111-110 og aðeins lokaumferð leiksins eftir. Þar náði Ísland að snúa leiknum við með 36-33 umferð og unnu því leikinn 146-144 og hélt því í gull úrslitaleikinn.
Í gull úrslitaleiknum mættust Ísland og aðallið heimaþjóðarinnar Finnlands sem var í 3 sæti í undankeppni NM. Finnar voru nýbúnir að setja Norðurlandametið í útsláttarleik liða með 150 stig í undanúrslitum og því gert ráð fyrir að bardaginn yrði harður. En svo var ekki og Ísland vann örugglega 151-139 og settu nýtt Norðurlandamet í leiðinni. Finnar gerðu mistök í fyrstu umferð og skutu einni ör á rangt skotmark, en Finnarnir voru samt sáttir við tapið af því að þeir töpuðu með meira en 10 stiga mun, þannig að það hefði engu máli skipt hvort að örin þeirra hefði lent í 10 á réttu skotmarki, þeir hefðu samt tapað leiknum. En svona er þetta allt getur gerst. En Ísland vann leikinn 151-139 (151-148 ef að örin hefði lent á réttri skífu) og Þórdís og Ragnar tóku því Norðurlandameistaratitil liða.
Norðurlandameistaratitill og bæði Norðurlandametin, er hægt að gera betur en það?
Nánar er fjallað um NM ungmenna í þessari frétt frá Bogfimisambandi Íslands.
Áfram Ísland!!






