Þórdís Unnur í 10 sæti á Evrópubikarmóti ungmenna

Þórdís Unnur Bjarkadóttir úr BFB Kópavogi var að keppa á Evrópubikarmóti ungmenna í Ruse Búlgaríu í U21 flokki trissuboga kvenna. Þar sem hún endaði í 10 sæti í blandaðri liðakeppni og 18 sæti í einstaklingskeppni. Þórdís flaug beint af Veronicas Cup þar sem hún vann brons, en ýmis vandamál komu upp tengt töskum á leið á Evrópubikarmótið og Þórdís fékk því ekki búnaðinn sinn fyrr en daginn sem undankeppni mótsins byrjaði.

Einstaklingskeppni trissuboga kvenna U21

Þórdís var ekki ánægð með skorið sitt í undankeppni mótsins 641 stig, en vindurinn var að hrella marga keppendur. Þórdís endaði í 21 sæti í undankeppni mótsins.

Þórdís mætti því Varvara Kemkina frá Rús… uuu hlutlausri þjóð (AIN) í 32 manna úrslitum. Þórdís átti góðan leik miðað við aðstæður og hefði unnið meirihluta keppenda í 32 manna úrslitum, en Varvara átti frábæran leik og skoraði hæsta skor allra keppenda í 32 manna úrslitum. Lítið hægt að gera í því þegar andstæðingurinn er bestur á öllum vellinum og tap sem maður getur sætt sig við, þó að það sé alltaf sárt. Þórdís endaði því í 18 sæti í lokaniðurstöðum mótsins.

Trissubogi Mixed team U21 (Blandað lið 1kk+1kvk)

Í blandaðri liðakeppni endaði Íslenska liðið (Ragnar og Þórdís) í 10 sæti í undankeppni mótsins og keppti því í 16 liða úrslitum á móti liði Rúmeníu sem var í 7 sæti í undankeppni. Skor liðana var mjög jafnt í undankeppni og því nánast 50/50 hver myndi taka sigurinn. En lukkan var Rúmeníu megin að þessu sinni og þeir tóku sigurinn 147-142 og Ísland endaði því í 10 sæti á mótinu. Okkar fólk var ekki að skjóta sitt besta og Rúmenía náði óvenju góðum leik, upp og niður á milli daga eins og þetta gengur.

Nánari fréttir af mótinu er hægt að finna í frétta Bogfimisambands Íslands hér:

Ísland með 3 verðlaun á Evrópubikarmóti ungmenna