Sóldís Inga Gunnarsdóttir úr BFB Kópavogi var að keppa á Evrópubikarmóti ungmenna í Ruse Búlgaríu í U18 flokki trissuboga kvenna. Þar sem hún endaði í 4 sæti í liðakeppni, 9 sæti í blandaðri liðakeppni og 21 sæti í einstaklingskeppni. Ásamt því sló hún fimm landsliðs Íslandsmet í liðakeppni mótsins.
Einstaklingskeppni trissuboga kvenna U18
Í einstaklingskeppni stóð Sóldís sig flott í undankeppni mótsins og endaði í 16 sæti með 613 stig. Það er nokkrum stigum hærra en hennar hæsta skor í alþjóðlegum mótum hingað til sem var 607 2025, þrátt fyrir vindinn sem var á þessu móti. Þannig að greinilega hafa verið framfarir á þeim bæ.
Sóldís mætti Alma Amores Sierra frá Spáni í 32 manna úrslitum. Sóldís var eylítið hærri í undankeppni mótsins og var því talin eylítið vænlegri til sigurs, en nánast 50/50 leikur. En lukkan elti Sóldísi ekki að þessu sinni og hún átti óvenju lakann leik. Sú Spænska tók því sigurinn 138-122 og Sóldís endaði því í 21 sæti í lokaniðurstöðum mótsins. Svona er þetta upp og niður sveiflan, Sóldís vann mun hærr settan keppanda í 32 manna úrslitum á EM innandyra, hér er það 50/50 og hún tapar. Maður getur tapað leik sem eru meiri líkur á að maður vinni og unnið leik sem eru minni líkur á að maður vinni, allt partur af leiknum.
Liðakeppni trissuboga U18 kvenna
Í trissuboga kvenna liðakeppni bættu stelpurnar okkar (Sóldís, Fjóla og Eydís) Íslandsmet landsliða í undankeppni mótsins með 1752 stig, en metið var áður 1670 stig og enduðu í 4 sæti.
Stelpurnar mættu Rús…. hehem liði hlutlausra íþróttamanna (AIN) í undanúrslitum þar sem stelpurnar bættu Íslandsmetið um 5 stig en það var ekki nóg til að taka sigurinn. Leikurinn endaði 222-186 og stelpurnar okkar héldu því í brons úrslit.
Í brons úrslitum mættu stelpurnar okkar Ítalíu. Sýnt var beint frá leiknum á Youtube rás World Archery Europe. Ítalska liðið skoraði 209 stig í undanúrslitum og því útlit fyrir að stelpurnar okkar gætu átt séns í bronsið. En Ítölsku áttu mjög góðan leik og tóku sigurinn 222-202. Ísland endaði því í 4 sæti í liðakeppni.
Mixed team U18 (Blandað lið 1kk+1kvk)
Í blandaðri liðakeppni slóu Íslenska liðið (Magnús og Sóldís) Íslandsmet landsliða með 1264 stig, en metið var áður 1252 stig. Ísland endaði í 8 sæti í undankeppni mótsins og keppti því í 16 liða úrslitum á móti Króatíu sem var í 9 sæti í undankeppni. Íslenska liðið var því talið eylítið líklegra til sigurs í leiknum. En lukkan elti ekki okkar fólk í leiknum og Króatía tók sigurinn 146-140 og hélt áfram í 8 liða úrslit. Íslenska liðið endaði í 9 sæti á mótinu.
Nánari fréttir af mótinu er hægt að finna í frétta Bogfimisambands Íslands hér:







