Magnús Darri Markússon úr BFB Kópavogi var að keppa á Evrópubikarmóti ungmenna í Ruse Búlgaríu í U18 flokki trissuboga karla. Þar sem hann endaði í 9 sæti í blandaðri liðakeppni og 16 sæti í einstaklingskeppni. Ásamt því sló hann Íslandsmet U18 í bæði undankeppni og útsláttarleik, var með hæsta skor Íslendinga í trissuboga óháð aldri og sló tvö landsliðs Íslandsmet í liðakeppni mótsins. Býsna góður árangur þar á bæ.
Einstaklingskeppni trissuboga karla U18
Í einstaklingskeppni stóð Magnús sig flott í undankeppni mótsins og endaði í 16 sæti með 651 stig, sem bætir 6 ára gamalt Íslandsmet trissuboga U18 um 9 stig, þrátt fyrir vindinn á mótinu!!! Það er gífurlega hopp í framför þar sem þetta var í fyrsta sinn sem Magnús skorar yfir 600 stigum og hann var lengi með þeim efstu í undankeppni mótsins.
Magnús mætti því í 32 manna úrslitum Carl Wenneberg frá Svíþjóð, þar sem Magnús sló Íslandsmetið í útsláttarleik U18 trissuboga karla (þrátt fyrir vindinn) og tók sigurinn 145-142 og hélt því í 16 manna úrslit. Frábær leikur hjá báðum keppendum, Magnús var bara betri.
Í 16 manna úrslitum mætti Magnús Gianluca De Silvio frá Þýskalandi sem var efstur í undankeppni mótsins. Þar átti sá Þýski frábæran leik, en Magnús átti tvær ólukku umferðir sem voru óvenju lágar í skori í leiknum. Sá Þýski tók því öruggann sigur 146-134 og Magnús endaði því í 16 sæti á Evrópubikarmótinu. Samt vel af sé vikið hjá Magnúsi.
Mixed team U18 (Blandað lið 1kk+1kvk)
Í blandaðri liðakeppni slóu Íslenska liðið (Magnús og Sóldís) Íslandsmet landsliða með 1264 stig, en metið var áður 1252 stig. Ísland endaði í 8 sæti í undankeppni mótsins og keppti því í 16 liða úrslitum á móti Króatíu sem var í 9 sæti í undankeppni. Íslenska liðið var því talið eylítið líklegra til sigurs í leiknum. En lukkan elti ekki okkar fólk í leiknum og Króatía tók sigurinn 146-140 og hélt áfram í 8 liða úrslit. Íslenska liðið endaði í 9 sæti á mótinu.
Nánari fréttir af mótinu er hægt að finna í frétta Bogfimisambands Íslands hér:







