Þórdís Unnur Bjarkadóttir með gull á heimslistamóti fullorðinna í Slóveníu

Þórdís Unnur Bjarkadóttir endaði í 1 sæti á Veronicas Cup World Ranking Event, ásamt liðsfélögum sínum Freyju Dís Benediktsdóttir og Önnu Maríu Alfreðsdóttir eftir yfirgnæfandi sigur í gull úrslita leik liða á mótinu gegn Lúxemborg 225-219

https://bogfimi.smugmug.com/Veronicas-Cup-2023/i-54Vm4BN

Þórdís var einnig að keppa í einstaklingskeppni á mótinu en þar endaði hún í 17 sæti eftir að vera slegin út í lokakeppni mótsins af Petra Kocutova frá Slóvakíu 139-131.

Þórdís sló bæði fullorðins og U21 Íslandsmetið í útsláttarkeppni trissuboga kvenna liða á mótinu í gull úrslita leiknum. Metið var áður 223 og er nú 225.

https://bogfimi.smugmug.com/Veronicas-Cup-2023/i-hcmprbb

Þetta er fyrsta sinn sem Þórdís keppir á World Ranking móti þar sem aðeins eru gefin stig á heimslista í bogfimi á alþjóðlegum stórmótum fullorðinna. En Þórdís hefur aðeins keppt á alþjóðlegum ungmenna mótum hingað til, meðal annars á Evrópubikarmóti ungmenna í síðustu viku í Slóveníu þar sem hún vann silfur ásamt liðinu í U21 flokki.

https://bogfimi.smugmug.com/Veronicas-Cup-2023/i-xSmSJjD

Þórdís er nú í 296 sæti á heimslista og 123 sæti á Evrópulista fullorðinna. Hún átti einnig hlut í því að hækka Íslenska trissuboga kvenna liðið 18 sæti á heimslista og í 8 sæti á Evrópulista.

https://bogfimi.smugmug.com/Veronicas-Cup-2023/i-dxj2cnH

Þórdís er næst áætluð til keppni á Norðurlandameistarmóti ungmenna í Noregi í júlí og Evrópubikarmóti ungmenna í Sviss í júní.

https://bogfimi.smugmug.com/Veronicas-Cup-2023/i-vCCJNGr

Veronicas Cup World Ranking Event er árlegt mót sem haldið er í Kamnik Slóveníu í samstarfi við Evrópska Bogfimisambandið. Að þessu sinni var keppnin sjálf 12-14 maí og sex keppendur frá Íslandi kepptu á mótinu. Samtals voru 291 þátttakendur á mótinu frá 85 þjóðum.

Mótið er meðal þeirra styttri sem fyrir finnast í fjölda daga sem gerir mótið mjög hagkvæmt fyrir keppendur, en fórnin er í staðin að keppnisdagarnir verða mun lengri. Sumir keppendur þurftu að keppa 12 klst á sama degi án hlés.

Veðrið var einnig mjög krefjandi á þessu ári en það rigndi eins og hellt væri úr fötu meirihluta mótsins. Grasvöllurinn breyttist í drullupolla á sumum stöðum og enginn slapp við að vera vel blautur og drullugur sama hve vel þeir voru klæddir og þó að þeir notuðu regnhlífar eða hlífðarfatnað.

Frekari upplýsingar er hægt að finna hér:

    • Nánari fréttir af mótinu og öðrum keppendum á archery.is og bogfimi.is
    • Myndir af mótinu er hægt að finna á smugmug BFSÍ
    • Beina útsendingu frá gull og brons úrslitum mótsins er hægt að finna hér
    • Úrslit mótsins í heild sinni er hægt að finna á ianseo.net