Ragnar Smári Jónasson í 5 sæti á Veronicas Cup World Ranking Event

Ragnar Smári Jónasson endaði í 5 sæti á Veronicas Cup World Ranking Event, ásamt liðsfélaga sínum Freyju Dís Benediktsdóttir, eftir naumt tap gegn Slóvakíu 147-149 í 8 liða úrslitum blandaðra liða (mixed team 1kk+1kvk einnig stundum kallað parakeppni á Íslandi).

Ragnar var einnig að keppa í einstaklingskeppni á mótinu en þar endaði hann í 17 sæti eftir að vera slegin út í lokakeppni mótsins af Giacomo Cuogo frá Ítalíu 136-133. Vert er að geta þó að Ragnar skaut 140 stig í fyrri útslætti í keppninni sem er hans personal best og ekki langt frá Íslandsmetinu.

Þetta er fyrsta sinn sem Ragnar keppir á World Ranking móti þar sem aðeins eru gefin stig á heimslista í bogfimi á alþjóðlegum stórmótum fullorðinna. En Ragnar hefur aðeins keppt á alþjóðlegum ungmenna mótum hingað til. Ragnar er nú hæstur trissuboga karla frá Íslandi í 363 sæti á heimslista og 137 á Evrópulista trissuboga karla. Hann átti einnig hlut í því að hækka Íslenska trissuboga blandaða liðið um 7 sæti upp í 41 sæti á heimslista og hækkun um 4 sæti á Evrópulista og er nú í 16 sæti þar.

Ragnar er næst áætlaður til keppni á Norðurlandameistarmóti ungmenna í Noregi í júlí og Evrópubikarmóti ungmenna í Sviss í júní.

Veronicas Cup World Ranking Event er árlegt mót sem haldið er í Kamnik Slóveníu í samstarfi við Evrópska Bogfimisambandið. Að þessu sinni var keppnin sjálf 12-14 maí og sex keppendur frá Íslandi kepptu á mótinu. Samtals voru 291 þátttakendur á mótinu frá 85 þjóðum.

Mótið er meðal þeirra styttri sem fyrir finnast í fjölda daga sem gerir mótið mjög hagkvæmt fyrir keppendur, en fórnin er í staðin að keppnisdagarnir verða mun lengri. Sumir keppendur þurftu að keppa 12 klst á sama degi án hlés.

Veðrið var einnig mjög krefjandi á þessu ári en það rigndi eins og hellt væri úr fötu meirihluta mótsins. Grasvöllurinn breyttist í drullupolla á sumum stöðum og enginn slapp við að vera vel blautur og drullugur sama hve vel þeir voru klæddir og þó að þeir notuðu regnhlífar eða hlífðarfatnað.

Frekari upplýsingar er hægt að finna hér:

    • Nánari fréttir af mótinu og öðrum keppendum á archery.is og bogfimi.is
    • Myndir af mótinu er hægt að finna á smugmug BFSÍ
    • Beina útsendingu frá gull og brons úrslitum mótsins er hægt að finna hér
    • Úrslit mótsins í heild sinni er hægt að finna á ianseo.net