Þórdís Unnur Bjarkadóttir skemmti sér vel ásamt 376 íþróttamönnum frá 40 Evrópuþjóðum sem kepptu á Evrópumeistarmóti (EM) ungmenna í utandyra bogfimi sem haldið var í Róm Ítalíu 20-25 júlí.
Þórdís endaði í 23 sæti í einstaklingskeppni og 12 sæti í blandaðri liðakeppni.
Einstaklingskeppni:
Þórdís endaði í 26 sæti í undankeppni einstaklinga með skorið 642, sem er nokkuð gott miðað við veður aðstæður.
Þórdís mætti því í 32 manna úrslitum Sara Sjödahl frá Finnlandi, sem var í 39 sæti undankeppni EMU. Þórdís var talin sigurstranglegri bæði þar sem að hún var hærri í undakeppni EMU og þar sem stelpurnar mættust fyrr í mánuðinum á Norðurlandameistaramóti ungmenna, þar sem að Þórdís tók Norðurlandameistaratitilinn. En leikurinn endaði óvænt spennandi.
Sú Finnska byrjaði 2 stigum yfir í fyrstu lotu 27-25. Þórdís náði að jafna í annarri umferð 50-50 og Þórdís tók svo 3 stiga forystu 79-76 eftir þriðju umferð. Sú Finnska náði að jafna 104-104 í fjórðu umferð og aðeins fimmta og loka umferðin eftir. Þar skoruðu báðar stelpur 28 stig og jöfnuðu því umferðin og leikinn 132-132. Það þurfti því bráðabana til að ákvarða hvor þeirra héldi áfram í 32 manna úrslit. Sú Finnska skaut 7 á móti 9 frá Þórdísi og Þórdís hélt því áfram í 32 manna úrslit, þrátt fyrir að skora langt frá sínum besta leik. Alltaf næs þegar að maður er það mikið betri en andstæðingurinn að maður getur átt lakann dag og samt náð að preforma og ná sigrinum.
Í 32 manna úrslitum mættust Þórdís og Sofiia Mun frá Rús… Hehem hlutlaus íþróttamaður. Þar var Þórdís enþá að ströggla og sú “hlutlausa” tók sigurinn nokkuð örugglega 142-132 og Þórdís endaði því í 23 sæti á EM ungmenna.
Blönduð liðakeppni (Mixed team 1kk+1kvk):
Í mixed team (blandaðri liðakeppni, eða “parakeppni”) voru Ragnar og Þórdís efstu keppendur Íslands í undankeppni einstaklinga í hvoru kyni og mynduðu því liðið. Þar endaði Íslenska liðið í 10 sæti í undankeppni EMU með skorið 1312 sem er fínt miðað við að töluverður vindur var í undankeppni EMU.
Krakkarnir okkar mættu því liði Ítalíu í 16 liða úrslitum, sem var í 7 sæti í undankeppni EMU. Þar reyndist Ítalska liðið sterkarar og tók sigurinn 152-138 og Ísland endaði því í 12 sæti á EMU.
Ítalía skoraði hæsta leik allra landa í 16 liða úrslitum á móti Íslandi og Íslands skoraði lægsta leik í 16 liða úrslitum, bæði er óvenjulegt. Að öllu jöfnu er Ítalska liði aðeins sterkara en Íslenska liðið, en þegar að Íslenska liðið á góðan dag og Ítalska lélegann eða venjulegann dag þá ætti Ísland að vinna. Þessi dagur var bara akkúrat öfugur góður dagur hjá Ítalíu á móti lélegum degi frá Íslandi, svona getur dagsformið sveiflað niðurstöðum leikja 😉
Nánari upplýsingar um EM ungmenna er hægt að finna í frétt Bogfimisambands Íslands hér:
Ísland með verðlaun í fyrsta sinn á EM ungmenna utandyra, bæði silfur og brons í hús








