Ragnar Smári Jónasson skemmti sér vel ásamt 376 íþróttamönnum frá 40 Evrópuþjóðum sem kepptu á Evrópumeistarmóti (EM) ungmenna í utandyra bogfimi sem haldið var í Róm Ítalíu 20-25 júlí.
Ragnar endaði í 19 sæti í einstaklingskeppni og 7 sæti í liðakeppni og 12 sæti í blandaðri liðakeppni og sló eitt landsliðsmet.
Einstaklingskeppni:
Ragnar endaði í 24 sæti í undankeppni einstaklinga með skorið 670, sem er nokkuð gott miðað við veður aðstæður. Ragnar mætti því Alvaro Sanchez frá Spáni í 32 manna úrslitum, sem var í 9 sæti undankeppni EMU. Leikurinn var nokkuð jafn, en sá Spænski var aðeins sterkari í leiknum og sló Ragnar út 143-138 og Ragnar endaði því í 19 sæti í einstaklingskeppni.
Liðakeppni:
Í trissuboga U21 liðakeppni enduðu strákarnir okkar (Ragnar/Natan/Ísar) í 7 sæti í undankeppni EMU með 1786 stig sem er landsliðsmet, metið var áður 1743 stig.
Strákarnir okkar voru slegnir út í 8 manna úrslitum af Spáni sem var í 2 sæti í undankeppni EMU 226-208. Okkar strákar enduðu því í 7 sæti í liðakeppni á EMU
Blönduð liðakeppni (Mixed team 1kk+1kvk):
Í mixed team (blandaðri liðakeppni, eða “parakeppni”) voru Ragnar og Þórdís efstu keppendur Íslands í undankeppni einstaklinga í hvoru kyni og mynduðu því liðið. Þar endaði Íslenska liðið í 10 sæti í undankeppni EMU með skorið 1312 sem er fínt miðað við að töluverður vindur var í undankeppni EMU.
Krakkarnir okkar mættu því liði Ítalíu í 16 liða úrslitum, sem var í 7 sæti í undankeppni EMU. Þar reyndist Ítalska liðið sterkarar og tók sigurinn 152-138 og Ísland endaði því í 12 sæti á EMU.
Ítalía skoraði hæsta leik allra landa í 16 liða úrslitum á móti Íslandi og Íslands skoraði lægsta leik í 16 liða úrslitum, bæði er óvenjulegt. Að öllu jöfnu er Ítalska liði aðeins sterkara en Íslenska liðið, en þegar að Íslenska liðið á góðan dag og Ítalska lélegann eða venjulegann dag þá ætti Ísland að vinna. Þessi dagur var bara akkúrat öfugur góður dagur hjá Ítalíu á móti lélegum degi frá Íslandi, svona getur dagsformið sveiflað niðurstöðum leikja 😉
Nánari upplýsingar um EM ungmenna er hægt að finna í frétt Bogfimisambands Íslands hér:
Ísland með verðlaun í fyrsta sinn á EM ungmenna utandyra, bæði silfur og brons í hús





