Magnús Darri á EM ungmenna í 23 sæti einstaklinga, 5 sæti liða og 7 sæti í para

Magnús Darri Markússon skemmti sér vel ásamt 376 íþróttamönnum frá 40 Evrópuþjóðum sem kepptu á Evrópumeistarmóti (EM) ungmenna í utandyra bogfimi sem haldið var í Róm Ítalíu 20-25 júlí.

Magnús endaði í 23 sæti í einstaklingskeppni og 5 sæti í liðakeppni og 7 sæti í blandaðri liðakeppni. Hann setti einnig þrjú landsliðsmet með Íslenskum liðum.

Einstaklingskeppni:

Magnús endaði í 17 sæti í undankeppni einstaklinga með skorið 647, sem er nokkuð gott miðað við veður aðstæður. Magnús mætti því Igor Vanin frá Rús…. hehem “hlutlausum íþróttamönnum” í 32 manna úrslitum, sem var í 16 sæti undankeppni EMU. Leikurinn hefði því átt að vera nokkuð jafn og spennandi þar sem lítill munur var á milli þeirra í undankeppni, en það var mikill vindur og Magnús byrjaði leikinn á lakri umferð sem setti hann 5 stigum undir eftir fyrstu umferð, sem er erfitt að vinna sig upp úr á EMU. Igor endaði því sterkari og sló Magnús út 140-133 og Magnús endaði því í 23 sæti í einstaklingskeppni.

Liðakeppni:

Í trissuboga U18 liðakeppni enduðu strákarnir okkar (Bergur/Henry/Magnús) í 5 sæti í undankeppni EMU með 1625 stig sem er landsliðsmet.

Strákarnir okkar voru slegnir út í 8 manna úrslitum af Eistlandi sem var í 4 sæti í undankeppni EMU 215-171. En Eistar tóku svo einnig sterkasta lið Tyrklands út í undanúrslitum og tóku á endanum silfrið eftir tap gegn Ítalíu í gull úrslitum. Okkar strákar enduðu því í 5 sæti í liðakeppni á EMU

Þetta var í fyrsta sinn sem Ísland skipaði U18 karla liði í trissuboga á EM ungmenna og því settu þeir bæði Íslandsmet landsliða í útsláttarleik og undankeppni og settu besta árangur Íslands í liðakeppni til dags.

Blönduð liðakeppni (Mixed team 1kk+1kvk):

Í mixed team (blandaðri liðakeppni, eða “parakeppni”) voru Magnús og Fjóla efstu keppendur Íslands í undankeppni einstaklinga í hvoru kyni og mynduðu því liðið. Þar endaði Íslenska liðið í 10 sæti í undankeppni EMU með skorið 1244 sem er ekki langt frá landsliðsmetinu sem er 1264 stig sem er mjög gott miðað við að töluverður vindur var í undankeppni EMU.

Krakkarnir okkar mættu því liði Spánar í 16 liða úrslitum, sem var í 7 sæti í undankeppni EMU.

Spánn var talið sigurstranglegra liðið, en Ísland byrjaði með 3 stiga forskot eftir fyrstu umferð leiksins 37-34. Ísland og Spánn jöfnuðu aðra umferð 37-37 og Spánverjar náðu að saxa 1 stig af forskoti Íslands í þriðju umferð 39-38 og staðan í leiknum því 112-110 fyrir Íslandi og aðeins ein umferð eftir. Þar jöfnuðu liðin umferðina aftur 36-36 og lokastaða leiksins því 148-146 sigur fyrir Ísland. Spánn endaði því í 10 sæti og Ísland hélt áfram í 8 liða úrslit

Í 8 liða úrslitum mætti Ísland sterkasta liði mótsins Tyrklandi. Þó að munurinn í flestum umferðum hafi ekki verið mikill og Íslenska parið að skora vel í 3 af 4 umferðum, þá skoruðu Tyrkir hæsta leik allra þjóða í 8 manna úrslitum á móti Íslandi og tóku því sigurinn með 8 stigum 153-145. Tyrkir tóku síðar Evrópumeistaratitilinn í mixed team á mótinu, Ísland endaði í 7 sæti.

Samt vel gert hjá okkar krökkum sem slóu Íslandsmetið í útsláttarleik liða tvisvar. Metið var áður 140 stig og þau skoruð tvisvar yfir því 148 og 145 og ekki í bestu veðuraðstæðum.

Nánari upplýsingar um EM ungmenna er hægt að finna í frétt Bogfimisambands Íslands hér:

Ísland með verðlaun í fyrsta sinn á EM ungmenna utandyra, bæði silfur og brons í hús