Garðbæjingurinn Þórdís Unnur Bjarkadóttir endaði í 5 sæti í liðakeppni, 10 sætí í blandaðri liðakeppni og 25 sæti í einstaklingskeppni á Evrópubikarmóti (EB) í meistaraflokki í Antalya í Tyrklandi. (European Grand Prix – EGP). Ásamt því bætti eða jafnaði Þórdís öll 4 Íslandsmet landsliða í blandaðri liðakeppni.
Þórdís sem er á fyrsta ári í U21 flokki (18 ára) náði 670 í skori í undankeppni Evrópubikaramótsins í meistaraflokki, sem er frábær frammistaða. Það skor hefði til samanburðar nettað henni 3 sæti í undankeppni EM U21 árið 2024. En hún endaði í 27 sæti í undankeppni Evrópubikarmótsins í Tyrklandi í meistaraflokki núna. 104 efstu einstaklingar og 24 lið halda áfram eftir undankeppni.
Útsláttarkeppni einstaklinga: 5 umferðir af 3 örvum (15 örvar) sá sem skorar hærra vinnur leikinn. Ef skorið er jafnt er bráðabani skotið einni ör, sá sem er nær miðju vinnur og heldur áfram í næsta leik o.s.frv. þar til einn stendur eftir sem sigurvegari mótsins.
Frammistaða Þórdísar í undankeppni Evrópubikarmótsins var næg til þess að hún sat hjá og hélt beint í 32 manna úrslit.
Í 32 manna úrslitum mættust Þórdís og Elisa Roner frá Ítalíu. Elisa vann síðustu Evrópuleika 2023 og er 6 falldur Evrópumeistari innandyra svo að eitthvað sé nefnt. Ekki mikil heppni hjá Þórdísi að mæta slíkum andstæðingi í 32 manna úrslitum Evrópubikarmótsins, en svona er það. Elisa var því talin mun sigurstranlegri í leiknum.
Leikurinn byrjaði ekki vel hjá Þórdísí í fyrstu tveim umferðum leiksins, með 27 sem er allt í lagi og svo 25 sem er óheppileg umferð. En síðustu 3 umferðirnar voru flottar hjá Þórdísi 28/30/29. Elisa var hinsvegar on fire og skoraði 148 stig, 2 stigum frá fullkomnu skori, lítið hægt að gera á móti því, enda var það hæsta skor í leik trissuboga kvenna á öllum Evrópubikarmótinu. Enginn keppandi á mótinu hefði unnið í þessum leik gegn Elisa, svo góður var leikurinn. Elisa skoraði 145 í bæði 16 og 8 manna Evrópubikarmótsins sem er rétt yfir meðaltali þeirrar Ítölsku. En það breytti því ekki að Þórdís var slegin út 148-139 í 32 manna úrslitum og endaði í 25 sæti.
Ragnar og Þórdís voru slegin út í 16 liða úrslitum í blandaðri liðakeppni gegn Lúxemborg í leik sem var 50/50 hver myndi vinna þar sem að liðin voru nánast jöfn í undankepppni EB. Tapið var sárt 153-151 þar sem Ísland átti 3 örvar á línu sem allar voru dæmdar sem lægra skorið og leikurinn hefði auðveldlega geta farið í vil Íslands. En þannig er það bara dagslukkan/formið, skjóta bara betri tíur í framtíðinni svo að enginn vafi sé á hvað skorið er 😉. Lúxemborg náði að vinna sig upp í gull úrslitaleik EB með því að vinna svo annað hæsta liðið í undankeppni Þýskaland í bráðabana 152-152 (19-18) í 8 liða úrslitum og svo Ítalíu 152-151 í undanúrslitum. Þau keppa því á móti Tyrklandi um gull úrslitum. Alltaf gaman að sjá smáþjóða frændur ná árangri, þó að við hefðum að sjálfsögðu frekar viljað sjá Ísland vinna leikinn gegn þeim og ná í gull úrslitin frekar.
Ragnar og Þórdís slógu einnig Íslandsmet U21 í blandaðri liðakeppni (mixed team) bæði í undankeppni og úrslitaleikjum, ásamt því að slá meistaraflokks metið í blandaðri liðakeppni í undankeppni meistaraflokks og jafna Íslandsmetið í úrslitaleikjum meistaraflokks. Semsagt öll Íslandsmetin í blandaðri liðakeppni slegin eða jöfnuð, gífurlega sterkt par þarna á ferðinni, sem eru bæði ung (Ragnar 20 ára og Þórdís 18 ára).
Miðað við frammistöðu Þórdísar og Ragnars þá er í raun ekki spurning um hvort að þau munu vinna til verðlauna í meistaraflokki á EM og EB heldur hvenær. En þau teljast bæði sem ungmenni enþá og einbeita sér því mest að ungmenna mótum. Trissuboga blandaðri liðakeppni verður einnig í fyrsta sinn á Ólympíuleikum 2028 og hefur verið á Evrópuleikum frá 2019, því vel líklegt að þau gætu unnið þátttökurétt fyrir Ísland á ÓL í framtíðinni og jafnvel fyrstu verðlaun Íslands á Evrópuleikum í náinni framtíð.
Ísland var ekki langt frá því að komast í gull/brons úrslitaleiki trissuboga kvenna, en stelpurnar okkar enduðu í 5 sæti eftir að vera slegnar út af Frakklandi í 8 liða úrslitum. Ísland leiddi leikinn í 8 liða úrslitum með þrem stigum 112-109 gegn Frakklandi í “hálfleik” en stelpurnar okkar féllu á tíma að skjóta einni örinni í þriðju umferð og fengu því M (0 stig) fyrir þá ör. Það snéri leiknum við í 6 stiga forskot fyrir Frakklandi og setti stelpurnar út af laginu. En samt feiki vel gert hjá okkar stelpum gegn sterku liði Frakklands sem vann bronsið seinna á EB í brons úrslitaleik gegn Þýskalandi.
Íslandsmet sem Þórdís sló:
- Landsliðsmet undankeppni meistaraflokkur trissuboga blandað lið (1kk+1kvk) – 1370 stig, metið var áður 1339 stig frá árinu 2022
- Þórdís Unnur Bjarkadóttir BFB
- Ragnar Smári Jónasson BFB
- Landsliðsmet undankeppni U21 trissuboga blandað lið (1kk+1kvk) – 1370 stig, metið var áður 1322 stig frá árinu 2024
- Þórdís Unnur Bjarkadóttir BFB
- Ragnar Smári Jónasson BFB
- Jafnað landsliðsmet útsláttarkeppni meistaraflokkur trissuboga blandað lið (1kk+1kvk) – 151 stig , metið er 151 stig frá árinu 2017
- Þórdís Unnur Bjarkadóttir BFB
- Ragnar Smári Jónasson BFB
- Landsliðsmet undankeppni U21 trissuboga blandað lið (1kk+1kvk) – 151 stig, metið var áður 149 stig frá árinu 2024
- Þórdís Unnur Bjarkadóttir BFB
- Ragnar Smári Jónasson BFB
Evrópumeistaramótið verður haldið eftir mánuð á sama stað í Antalya í Tyrklandi og verður gaman að sjá hvernig okkar
Fjallað er nánar um Evrópubikarmótið í þessari frétt frá Bogfimisambandi Íslands
Ragnar framúrskarandi á Evrópubikarmótinu í Antalya Tyrklandi







