Eowyn Marie Mamalias úr BFB Kópavogi endaði í 5 sæti í liðakeppni og 18 sæti í einstaklingskeppni á Evrópubikarmóti (EB) í meistaraflokki í Antalya í Tyrklandi. (European Grand Prix – EGP).
Á Evrópubikarmótinu (útsláttarkeppni) í einstaklinga mættust óheppilega (eða heppilega eftir því hvernig er horft á það) tveir Íslendingar Anna María Alfreðsdóttir og Eowyn Marie Mamalias í fyrsta leik. Anna var í 34 sæti og Eowyn í 31 sæti undankeppni EB og því ljóst að það yrði harður bardagi milli Íslendinga um hvor þeirra kæmist áfram í 32 manna úrslit, en það yrði 100% líkur á að Ísland næði öðrum keppanda í 32 manna úrslit. Eowyn hefur haft þennan sérstaka “ólukku/lukku” hæfileika að ná einhvern veginn að lenda oftast á móti öðrum Íslendingi í útsláttarkeppni í erlendum landsliðsverkefnum.
5 umferðir af 3 örvum (15 örvar) sá sem skorar hærra vinnur leikinn. Ef skorið er jafnt er bráðabani skotið einni ör, sá sem er nær miðju vinnur og heldur áfram í næsta leik o.s.frv. þar til einn stendur eftir sem sigurvegari mótsins.
Eowyn byrjaði yfir í leiknum 28-27 og jók forskotið í annari umferð í 56-54. Stelpurnar jöfnuðu þriðju og fjórðum umferðirnar 26-26 og 27-27. Staðan var því 109-107 fyrir Eowyn, en Anna náði að vinna upp 2 stiga muninn með 29-27 umferð og jafna leikinn 136-136. Það þurfti því bráðabana til að ákvarða hvor þeirra héldi í 32 manna úrslit. Þar náði Eowyn þó sigrinum með 10 á móti 9 frá Önnu. Eowyn tók því sigurinn og hélt áfram í 32 manna úrslit og Anna endaaði í 33 sæti EB.
Í 32 manna úrslitum mættust Eowyn og Katharina Raab frá Þýskalandi sem var í öðru sæti í undankeppni EB. Raab var talin mun sigurstranlegri í leiknum.
Leikurinn byrjaði á 2 stig forskoti Raab 30-28. Eowyn snéri því svo við í annarri umferð 30-28 þar sem Eowyn jafnaði leikinn 58-58. Raab náði aftur 2 stig forskoti 29-27 eftir þriðju umferð 87-85 staðan í leiknum. Eowyn náði að saxa forskotið niður um 1 stig í fjórðu umferð 29-28 í 115-114 þar sem Raab leiddi með einu stigi á leið í síðustu umferðina. Þar tók Raab sigurinn 145-143 með 30-29 umferð. Eowyn endaði því í 18 sæti. Raab vann sig áfram í topp 4 og mun keppa í annað hvort gull eða brons úrslitum Evrópubikarmótsins á morgun.
Ísland var ekki langt frá því að komast í gull/brons úrslitaleiki trissuboga kvenna, en stelpurnar okkar enduðu í 5 sæti eftir að vera slegnar út af Frakklandi í 8 liða úrslitum. Ísland leiddi leikinn í 8 liða úrslitum með þrem stigum 112-109 gegn Frakklandi í “hálfleik” en stelpurnar okkar féllu á tíma að skjóta einni örinni í þriðju umferð og fengu því M (0 stig) fyrir þá ör. Það snéri leiknum við í 6 stiga forskot fyrir Frakklandi og setti stelpurnar út af laginu. En samt feiki vel gert hjá okkar stelpum gegn sterku liði Frakklands sem vann bronsið seinna á EB í brons úrslitaleik gegn Þýskalandi.
Gaman er að geta þess að Eowyn var í 7 sæti í einstaklingskeppni á síðasta Evrópubikarmóti í Hollandi 2025
Fjallað er nánar um Evrópubikarmótið í þessari frétt frá Bogfimisambandi Íslands
Ragnar framúrskarandi á Evrópubikarmótinu í Antalya Tyrklandi




