Þórdís í 11 sæti á EM og náði aftur lágmörkum fyrir Evrópuleika

Þórdís Unnur Bjarkadóttir úr Bogfimifélaginu Boganum í Kópavogi endaði í 11 sæti með trissuboga kvenna landsliðinu á Evrópumeistaramótinu utandyra í Antalya Tyrklandi í vikunni. Þórdís keppti einnig í blandaðri liðakeppni þar sem hún endaði í 22 sæti. Hún endaði 36 sæti í einstaklingskeppni EM og náði lágmörkum fyrir Evrópuleika annað mótið í röð á þessu ári.

Einstaklingskeppni EM

Í undankeppni einstaklinga var Þórdís með allt í lagi skor í fyrri umferðinni 325 stig þar sem tíurnar voru ekki samvinnuþýðar og allar örvar alltaf í kringum tíuna og allt of hugsað. Seinni umferðin var þó mun betri 340 stig þar sem bæði tíurnar og hugurinn var samvinnuþýður að mestu. Þórdís endaði í 46 sæti með 665 stig í undankeppni EM, 104 keppendur halda áfram á EM í útsláttarleiki. Vert er að geta að lágmarkskor fyrir Evrópuleika (European Games EOC) er 640 og þetta er annað mótið í röð á þessu ári þar sem Þórdís er yfir því skori.

Á EM var Þórdís slegin út í 56 manna leikjum þar sem hún mætti Kseniia Shkliar frá Úkraínu í spennandi leik. Þórdís byrjaði yfir í leiknum eftir fyrstu umferðina 29-28. Úkraínska jafnaði í annarri umferð 29-28 og staðan í leiknum 57-57. Úkraínska náði svo 1 stigs forskoti í umferð 3 29-28 og staðan 86-85. Stelpurnar jöfnuð fjórðu umferð 29-29 og staðan 115-114 á leið í síðustu umferð. Þar náði hin Úkraínska hins vegar fullkomnu skori 30 og gaf því ekkert færi fyrir Þórdísi að jafna eða vinna, en hún skoraði 28. Loka niðurstöður 145-142, Úkraínska hélt áfram í 32 manna úrslit og Þórdís var slegin út og endaði í 36 sæti á EM utandyra 2026 í einstaklingskeppni. Súrt að komast ekki í 32 manna úrslit, en Þórdís var ekki að skjóta illa, andstæðingurinn skaut bara betur.

Liðakeppni EM

Í undankeppni liða á EM skoruðu stelpurnar okkar í trissuboga kvenna aðeins 2 stigum frá Íslandsmeti landsliða kvenna með 1984 stig en metið er 1986 síðan á EM 2022. Þær jöfnuðu einnig hæsta sæti sem Ísland hefur náð í undankeppni EM frá EM 2024, 11 sæti. 24 efstu lið halda áfram á EM og okkar stelpur héldu því áfram í útsláttarkeppni EM.

Á EM sjálfu (leikjum) voru stelpurnar okkar á endanum slegnar út af Frakklandi í 16 liða úrslitum. Stelpurnar okkar voru að ströggla í leiknum við vindinn og tíma í leiknum og skutu m.a. einni ör á engum tíma á síðustu sekúndu sem lenti ekki inn á skotmarki. Á meðan að Frakkland skoraði lang hæst skorandi leik í 16 liða úrslitum, hæsta leik sinn á EM og einn hæsta leik á öllu EM gegn Íslandi. Það kom því ekki að sök að stelpurnar okkar voru ekki að finna sig þar sem að Frakkland átti það góðan leik að þær hefðu líklegast samt unnið. En Frakkland hélt því áfram í 8 liða úrslit og stelpurnar okkar enduðu í 11 sæti á EM utandyra 2026 í liðakeppni.

Blönduð liðakeppni EM (Mixed team)

Í undankeppni trissuboga blandaðra liða (mixed team) náði hæsta skori Íslands á EM til dags með 1341 stig en hæsta var áður 1339 stig frá EM 2022. Framför sem er frábær, en bæði Þórdís og Ragnar voru að skora undir sínu besta í undankeppni og nóg af stigum á borðinu, þetta met mun því vafalaust hækka mikið á næstu árum.  Þau enduðu í 23 sæti í undankeppni EM 24 efstu lið halda áfram á EM og okkar fólk hélt því áfram í útsláttarkeppni EM.

Þar mættust Ísland og Króatía í 24 liða úrslitum. Leikurinn byrjaði vel og bæði lið skoruðu 38 á fyrstu umferð. Í annarri umferð var vindurinn byrjaður að aukast, farið að dropa úr himni og heyrast í þrumum í nánd við völlinn þar tók Króatía 36 á móti 34 frá Íslandi og Króatía tók því 74-72 forystu eftir hálfan leik. Áður en að þriðja umferðin byrjaði opnuðust himnarnir svo alveg og sturtuðu yfir keppendur og þrumuveðrið færðist of nálægt vellinum til þess að öruggt væri að halda áfram.

Mótið var því stoppað í hálfleik á meðan beðið var eftir að þrumuveðrið færðist lengra frá keppnisvellinum. Eftir um 10 mínútna hlé þar sem Íslendingar voru búnir að lána bæði Grikklandi og Svíþjóð allar sínar auka regnhlífar hófust 24 liða leikir aftur með engum æfingarumferðum. Króatía voru fljótir að ná sér á strik aftur með 39 umferð en Ísland gerði það ekki með 34 umferð. Krótía leiddi því 113-106 og nokkuð ljóst að leiknum væri lokið. Í síðustu umferðinni skoraði Ísland 35 á móti 37 frá Króatíu, 141-150 var loka niðurstaðan, Króatía hélt í 16 liða úrslit og Ísland var slegið út og endaði í 22 sæti EM utandyra 2026 í blandaðri liðakeppni.

https://bogfimi.smugmug.com/EM-2026-Antalya-Tyrkland/i-67rtHFc/A

Nánar er fjallað um EM og aðra keppendur í þessari frétt Bogfimisambands Íslands:

Undankeppni EM gekk vel, en leikirnir á EM ekki okkar keppendum í vil að þessu sinni