Anna María Alfreðsdóttir úr Íþróttafélaginu Akur á Akureyri endaði í 11 sæti með trissuboga kvenna landsliðinu á Evrópumeistaramótinu utandyra í Antalya Tyrklandi í vikunni. Hún endaði 36 sæti í einstaklingskeppni EM og náði lágmörkum fyrir Evrópuleika.
Einstaklingskeppni EM
Í undankeppni einstaklinga var Anna frekar sátt við skorið sitt fyrsta sinn um langt skeið fyrri umferðinni 333 stig og seinni umferði 328 stig. Anna átti við meiðsli að stríða um nokkuð skeið og hefur reynst erfitt að koma sér á strik aftur í sömu skor og árangur og hún var að ná áður, sem er alltaf ströggl. Til samanburðar á EM 2022 skoraði hún 680 sem er hæsta skor sem Íslensk trissuboga kona hefur náð og náði hæsta sæti í undankeppni (22 sæti) og lokasæti (17 sæti) EM. Núna finnst henni hún vera loksins að sjá þróun í átt að fyrri árangri og bjartara útlit.
Anna endaði í 47 sæti með 661 stig í undankeppni EM, 104 keppendur halda áfram á EM í útsláttarleiki. Vert er að geta að lágmarkskor fyrir Evrópuleika (European Games EOC) er 640.
Á EM var Anna slegin út í 56 manna leikjum þar sem hún mætti Fenna Stallen frá Niðurlöndum í spennandi og jöfnum leik. Fenna byrjaði 29-28 yfir eftir fyrst umferð og náði að auka forskotið um annað stig 29-28 í annarri umferð og staðan 58-56. Stelpurnar jöfnuðu þriðju umferð 28-28 og fjórðu umferð 29-29 og staðan því 115-113 fyrir Fenna og aðeins loka umferðin eftir. Þar náði Anna að saxa niður forskotið um eitt stig 29-28, en það var ekki nóg og Fenna tók því naumlega sigurinn í leiknum 142-141. Anna var slegin út og endaði í 36 sæti á EM utandyra 2026 í einstaklingskeppni. Súrt að komast ekki í 32 manna úrslit aftur, en Anna var ekki að skjóta illa, andstæðingurinn skaut bara betur í þetta sinn.
Liðakeppni EM
Í undankeppni liða á EM skoruðu stelpurnar okkar í trissuboga kvenna aðeins 2 stigum frá Íslandsmeti landsliða kvenna með 1984 stig en metið er 1986 síðan á EM 2022. Þær jöfnuðu einnig hæsta sæti sem Ísland hefur náð í undankeppni EM frá EM 2024, 11 sæti. 24 efstu lið halda áfram á EM og okkar stelpur héldu því áfram í útsláttarkeppni EM.
https://bogfimi.smugmug.com/EM-2026-Antalya-Tyrkland/i-QrRb5Xs/A
Á EM sjálfu (leikjum) voru stelpurnar okkar á endanum slegnar út af Frakklandi í 16 liða úrslitum. Stelpurnar okkar voru að ströggla í leiknum við vindinn og tíma í leiknum og skutu m.a. einni ör á engum tíma á síðustu sekúndu sem lenti ekki inn á skotmarki. Á meðan að Frakkland skoraði lang hæst skorandi leik í 16 liða úrslitum, hæsta leik sinn á EM og einn hæsta leik á öllu EM gegn Íslandi. Það kom því ekki að sök að stelpurnar okkar voru ekki að finna sig þar sem að Frakkland átti það góðan leik að þær hefðu líklegast samt unnið. En Frakkland hélt því áfram í 8 liða úrslit og stelpurnar okkar enduðu í 11 sæti á EM utandyra 2026 í liðakeppni.
Nánar er fjallað um EM og aðra keppendur í þessari frétt Bogfimisambands Íslands:
Undankeppni EM gekk vel, en leikirnir á EM ekki okkar keppendum í vil að þessu sinni








