Magnús Darri bætir þremur Íslandsmeistaratitlum í safnið á Íslandsmóti U18

Magnús Darri Markússon úr BF Boganum í Kópavogi vann alla þrjá Íslandsmeistaratitlana sem honum stóðu til boða á Íslandsmóti U18 sem haldið var í Bogfimisetrinu um helgina (Karla, óháð kyni og félagsliða). Magnús náði einnig því afreki að vinna sinn þrítugasta Íslandsmeistaratitil ungmenna á mótinu, sem er afrek sem enginn annar Íslendingur hefur náð.

Magnús var efstur í undankeppni ÍMU18 bæði trissuboga kvenna og trissuboga allra með 582 stig og var talinn sigurstranglegastur í úrslitaleikjunum.

Úrslitaleikurinn um Íslandsmeistaratitil U18 karla:

Í úrslitaleiknum mættust Magnús og Birkir Björnsson liðsfélagi Magnúsar. Magnús skoraði 1 stigi hærra í næstum öllum lotum og náði nokkuð öruggum sigri 143-138 og tók Íslandsmeistaratitilinn. Birkir stóð sig vel á mótinu en Magnús er bara þetta hryllilega góður, enda hefur hann æft sig nánast daglega í mörg ár. Þetta þrítugasti Íslandsmeistaratitill Magnúsar yfirhöfuð á ferlinum.

Bergur Freyr BFB tók brons leikinn á móti Ágúst Inga úr ÍFA 140-127.

Úrslitaleikurinn um Íslandsmeistaratitil U18 (allir):

Í úrslitaleiknum mættust Magnús og Elísabet Fjóla Björnsdóttir liðsfélagi Magnúsar. Leikurinn byrjaði á jafntefli í fyrstu umferð 28-28, Magnús náði svo 2 stiga forystu eftir aðra umferð 30-28 og staðan 58-56 í leiknum. Magnús bæti öðru stigi við forskotið í þriðju umferð 87-84 og tveim stigum í viðbót í fjórðu umferð 116-111 og þau jöfnuðu svo síðustu umferðina 28-28, en staðan í leiknum 144-139 og Magnús tók því sigurinn og titilinn. Þetta var þrítugasti titill Magnúsar í ungmenna flokkum. Gaman er að geta þess einnig að Magnús sló Íslandsmetið í útsláttarleik tvisvar á mótinu.

Sóldís Inga tók brons leikinn á móti Berg Freyr 141-137 bæði úr BFB

Úrslitaleikurinn um Íslandsmeistaratitil U18 félagsliða:

Í úrslitaleiknum mættust:

  • BF Boginn 1
    • Magnús Darri Markússon
    • Sóldís Inga Gunnarsdóttir
  • BF Boginn 2
    • Elísabet Fjóla Björnsdóttir
    • Bergur Freyr Geirsson

Ljóst var að úrslitaleikurinn yrði jafn og spennandi þar sem að Elísabet og Fjóla (BFB 2) settu Íslandsmetið í útsláttarleik U18 félagsliðakeppni í undanúrslitum mótsins með 152 stig.

Fyrsta umferð úrslitana endaði jöfn 37-37, BFB1 (Magnús/Sóldís) náðu 2 stiga forskoti í annarri umferð 75-73 og juku forskotið um 1 stig í þriðju umferð 113-110. Í síðustu umferð úrslitaleiksins náði BFB2 (Fjóla/Bergur) að minnka muninn um 1 stig, en það var ekki nægilega til að taka sigurinn og BFB1 (Magnús/Sóldís) tók því sigurinn 151-149 og því félagsliðatitilinn.

BFB3 Birkir Björnsson og Eva María Einarsdóttir tóku bronsið. Félagið er það sterkast á Íslandi í trissuboga og þó að víðar væri leitað.

Samantekt af Íslandsmeistaratitlum

Magnús hefur samtals unnið samtals 32 Íslandsmeistaratitla, að meðtöldum þeim þrem sem hann vann á ÍM U18 um helgina.

  • 15 einstaklings Íslandsmeistaratitlar U16 (10 karla og 5 óháð kyni)
  • 3 einstaklings Íslandsmeistaratitlar U18 (2 karla og 1 óháð kyni)
  • 11 félagsliða Íslandsmeistaratitlar U16
  • 2 félagsliða Íslandsmeistaratitlar U18
  • 1 félagsliða Íslandsmeistaratitill Meistaraflokki

Sýnt var beint frá gull úrslitaleikjunum á Archery TV Iceland Youtube rásinni hér:

Nánar er hægt að lesa um Íslandsmót U18 í frétt Bogfimisambands Íslands hér:

Íslandsmót U18 góð mæting og spennandi úrslit