Stóra Núps móti Aflýst 8 ágúst vegna Covid

Mótshaldarar Stóra Núps mótsins ákváðu í dag að aflýsa síðasta móti mótaraðarinnar sem átti að halda laugardaginn 8 ágúst að Stóra Núpi. Verðlaun fyrir mótaröðina verða afhent miðað við hæsta skor ársins í mótaröðinni.

Á föstudaginn settu yfirvöld samkomubann í gang aftur vegna Covid farsóttar, með sambærilegum takmörkunum og hafa verið áður (2 metrar, ofl). Íþróttafélögum voru sendar í gær kvöldi upplýsingar um áhrif nýrra takmarkana á íþróttastarf. Mögulegt er að halda mót með takmörkunum sem voru settar í gildi, en mótshöldurum að Stóra Núpi finnst ekki ábyrgt að safna saman fólki af öllu landinu á sama stað þegar einhver hætta er á að breiða út smiti og nokkrir þátttakendur á mótinu eru í sérstökum áhættuhópi. Sem er ákvörðun til fyrirmyndar.

Þetta er leiðinlegt fyrir keppendurna en eðlileg ákvörðun miðað við aðstæður. Verið er að vinna í að senda tölvupósta á skráða keppendur til þess að upplýsa þá um aðstæður og málavexti.

Stóra Núps meistaramóta röðin mun halda áfram á næsta ári. Líklegast með sambærilegu formi og átti að vera 2020, semsagt 3 mótaröð. Samt vonandi ekki með sömu vandræðum og voru 2020. Líklegt er að keppni í yngri flokkum verði bætt við á næsta ári og mótið verði haldið yfir 2 daga. Opinn flokkur á fyrri degi og ungmenna/öldungar á seinni degi.

Vonum svo öll að Covid leysist í ár og að þetta sé SÍÐASTA slíka slíka árið á okkar lífstíð.


Hér fyrir neðan er hægt að sjá núverandi takmarkanir vegna Covid. Í mjög stuttu máli: Venjulegt bogfimistarf getur haldið áfram, en fullorðnir þurfa að fara eftir fjöldatakmörkum og 2 metra reglu.

Til sambandsaðila ÍSÍ

Reykjavík, 31. júlí 2020

Heil og sæl öll!

Á hádegi í dag, 31. júlí, tók gildi ný auglýsing heilbrigðisráðherra um takmörkun á samkomum vegna farsóttar og er gildistími hennar til 13. ágúst næstkomandi. Markmið breytinganna sem nú taka gildi er að hægja eins og unnt er á útbreiðslu COVID-19 sjúkdómsins, sem því miður er nú aftur í vexti hér á landi.

Breytingarnar fela meðal annars í sér að fjöldasamkomur, þar sem fleiri en 100 einstaklingar koma saman, eru óheimilar á gildistíma auglýsingarinnar. Gilda reglurnar jafnt um opinber rými sem og einkarými og eru íþróttaviðburðir þar með taldir. Ákvæðið um fjöldatakmörkun (3. grein) tekur þó ekki til barna sem eru fædd árið 2005 og síðar.

Skylt er að hafa a.m.k. 2 metra á milli einstaklinga sem ekki deila heimili á samkomum, öllum vinnustöðum og í allri annarri starfsemi.

Ákvæði um nálægðartakmörkun (4. grein) tekur þó ekki til barna sem eru fædd árið 2005 og síðar.

Í auglýsingunni kemur einnig fram að í starfsemi þar sem notaður er sameiginlegur búnaður, s.s. í íþróttastarfi, starfsemi líkamsræktarstöðva, spilasala og spilakassa skal búnaður sótthreinsaður milli notenda.

ÍSÍ óskaði eftir nánari útlistun frá sóttvarnarlækni varðandi íþróttastarfsemi fullorðinna og fékk rétt í þessu til baka tilmæli um eftirfarandi:

  1.     Að gert verði hlé á æfingum og keppni í íþróttum með snertingu til 13. ágúst næstkomandi eða þar til núgildandi auglýsing um takmarkanir á samkomum fellur úr gildi. 
  2.     Að æfingar og keppni í íþróttum án snertingar haldi áfram eftir því sem hægt er, að virtum reglum um fjöldatakmarkanir og nálægðarmörk skv. auglýsingu heilbrigðisráðherra.
  3.     Að sameiginlegur búnaður verði sótthreinsaður milli notkunar/notenda.

Auglýsing heilbrigðisráðherra og minnisblað sóttvarnarlæknis fylgja þessum pósti sem  viðhengi.

ÍSÍ hvetur íþróttahreyfinguna til að fara að fyrirmælum heilbrigðisyfirvalda og að viðhafa allar nauðsynlegar sóttvarnir.

Verum ábyrg!

Auglysing_samkomubann_30072020

Minnisblað sóttvarnalæknir 29072020