Sóldís Inga vann sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil U18 á Íslandsmótinu um helgina

Sóldís Inga Gunnarsdóttir úr BF Boganum í Kópavogi vann sinn fyrsta einstaklings Íslandsmeistaratitil í U18 flokki á ferlinum á Íslandsmóti U18 sem haldið var í Bogfimisetrinu um helgina. Ásamt því að vinna félagsliðatitilinn og jafna Íslandsmetið í útsláttarleik kvenna.

Sóldís var efst í undankeppni ÍMU18 í trissuboga kvenna með 562 stig, þó að það munaði aðeins 3 stigum á efstu tveim keppendum í undankeppni (Elísabet Fjóla með 559 stig) og því ljóst að hörð samkeppni yrði um titilinn.

Úrslitaleikurinn um Íslandsmeistaratitil U18 kvenna:

Í úrslitaleiknum mættust Sóldís og Elísabet Fjóla Björnsdóttir liðsfélagi Sóldísar. Fjóla tók 2 stiga forskot í fyrstu umferð úrslitaleiksins 28-26 og stelpurnar jöfnuðu aðra umferð 27-27. Sóldís náði að minnka muninn um 1 stig í þriðju umferð 28-27 og stelpurnar jöfnuð fjórðu umferðina 27-27. Staðan var því [Sóldís 108-109 Fjóla] og aðeins ein umferð eftir af úrslitaleiknum. Þar náði Sóldís glæsilegri umferð 29 á móti 27 umferð frá Fjólu og Sóldís náði því að snúa leiknum við í síðustu umferðinni úr því að vera 1 stigi undir yfir í að sigra leikinn með 1 stigi 137-136. Mjög spennandi leikur enda mjög jafnt á milli þeirra, en Sóldís tók sigurinn og Íslandsmeistaratitilinn þetta árið.

Eva María Einarsdóttir BFB tók bronsið

Úrslitaleikurinn um Íslandsmeistaratitil U18 félagsliða:

Í úrslitaleiknum mættust:

  • BF Boginn 1
    • Magnús Darri Markússon
    • Sóldís Inga Gunnarsdóttir
  • BF Boginn 2
    • Elísabet Fjóla Björnsdóttir
    • Bergur Freyr Geirsson

Ljóst var að úrslitaleikurinn yrði jafn og spennandi þar sem að Elísabet og Fjóla (BFB 2) settu Íslandsmetið í útsláttarleik U18 félagsliðakeppni í undanúrslitum mótsins með 152 stig.

Fyrsta umferð úrslitana endaði jöfn 37-37, BFB1 (Magnús/Sóldís) náðu 2 stiga forskoti í annarri umferð 75-73 og juku forskotið um 1 stig í þriðju umferð 113-110. Í síðustu umferð úrslitaleiksins náði BFB2 (Fjóla/Bergur) að minnka muninn um 1 stig, en það var ekki nægilega til að taka sigurinn og BFB1 (Magnús/Sóldís) tók því sigurinn 151-149 og því félagsliðatitilinn.

BFB3 Birkir Björnsson og Eva María Einarsdóttir tóku bronsið. Félagið er það sterkast á Íslandi í trissuboga og þó að víðar væri leitað.

Samantekt af Íslandsmeistaratitlum

Sóldís hefur samtals unnið 9 Íslandsmeistaratitlar ungmenna, að meðtöldum þeim tveim sem hún vann á ÍM U18 um helgina.

  • 4 einstaklings Íslandsmeistaratitlar U16 kvenna
  • 1 einstaklings Íslandsmeistaratitlar U18 kvenna (þetta var hennar fyrsti á ÍM núna)
  • 3 félagsliða Íslandsmeistaratitlar U16
  • 2 félagsliða Íslandsmeistaratitlar U18 (þetta var hennar annar titil á ÍM núna)

Sýnt var beint frá gull úrslitaleikjunum á Archery TV Iceland Youtube rásinni hér:

Nánar er hægt að lesa um Íslandsmót U18 í frétt Bogfimisambands Íslands hér:

Íslandsmót U18 góð mæting og spennandi úrslit