Magnús Darri með fullkomið skor fyrstur Íslendinga, og tók alla titlana og öll metin á Íslandsmóti U16

Magnús Darri Markússon úr BFB Kópavogi vann alla þrjá Íslandsmeistaratitla á Íslandsmóti U16 í trissuboga í Bogfimisetrinu í dag. Karla, unisex og í félagsliða titilinn. Ásamt því að slá eða jafna öll Íslandsmet í U16 flokki og skora fyrsta fullkomna skor í útsláttarleik í sögu íþróttarinnar.

  • Íslandsmeistari Trissuboga U16 (óháð kyni) – Magnús Darri Markússon BFB
  • Íslandsmeistari Trissuboga karla U16 – Magnús Darri Markússon BFB
  • Íslandsmeistari Trissuboga kvenna U16 – Indíana Laufey Arnarsdóttir – BFB
  • Íslandsmeistari Trissuboga félagsliðakeppni U16 – BF Boginn
    • Magnús Darri Markússon
    • Birkir Björnsson

Magnús Darri Markússon BFB skaut fyrsta fullkomna skor í sögu Íslands með 150 stig!!! 😮 í gull úrslitaleiknum um Íslandsmeistara titil karla. Þetta var síðasta ár Magnúsar í U16 og þar sem hann er fyrstur til að skora fullkomið skor (í U16 og yfirhöfuð í íþróttinni) mun hann því eiga U16 metið að eilífu. Þar sem að til þess að bæta met þyrfti einhver annar að skora einu stigi hærra en núverandi met, sem er ómögulegt þar sem að 150 stig er fullkomið skor fyrir 15 örva útsláttarleik. Framtíðar kynslóðir geta jafnað metið, en enginn mun geta bætt það eða tekið það af Magnúsi.

Það var þó naumara í gull úrslitaleiknum um Íslandsmeistaratitilinn óháð kyni, þar sem að Magnús vann liðsfélaga sinn Birki Björnsson með einu stigi 146-145 þar sem síðasta örin þurfti að vera 10 til að tryggja sér sigurinn.

Magnús og Birkir unnu saman Íslandsmeistaratitil U16 félagsliða örugglega 155-129 í gull úrslitaleiknum.

  • Íslandsmet Magnús Darri Markússon BFB – Trissuboga U16 útsláttarleikur – 150 stig fyrsta perfect skor í leik á Íslandi (metið var 146 stig).
    • Magnús skoraði 146, 149, 147 og 150 í sínum útsláttarleikjum og bætti því í raun Íslandsmetið sem hann átti (146) í öllum sínum leikjum á ÍM U16.
  • Íslandsmet BF Boginn – Trissuboga félagslið undankeppni – 1163 stig (metið var 1135 stig áður)
    • Magnús Darri Markússon
    • Birkir Björnsson
  • Íslandsmet BF Boginn – Trissuboga félagslið útsláttarleikur – 155 stig (metið er nýtt)
    • Magnús Darri Markússon
    • Birkir Björnsson

Nánar er hægt að lesa um Íslandsmót U16 í frétt Bogfimisambands Íslands hér:

Fullkomið skor á Íslandsmóti U16