Eva Kristín Sólmundsdóttir úr ÍF Akur á Akureyri vann alla þrjá Íslandsmeistaratitlana sem henni stóðu til boða á Íslandsmóti U18 sem haldið var í Reykjavík um helgina. Þetta voru fyrstu Íslandsmeistaratitlar sem Eva hefur unnið í U18 flokki, en þetta var áttundi, níundi og tíundi titillinn hennar í ungmennaflokkum almennt á ferlinum.
Eva var efst í undankeppni ÍMU18 bæði sveigboga kvenna og sveigboga allra með 549 stig og var talin sigurstranglegust í úrslitaleikjunum.
(Fyrir þá sem ekki þekkja til: Úrslitaleikur í sveigboga = 5 lotur, 2 stig fyrir að vinna lotu 2*5=10 stig í pottinum. Sá keppandi sem er fyrr að vinna 6 stig hefur því sigrað leikinn. Ef leikurinn endar í jafntefli 5-5, er bráðabani = einni ör skotið, sá sem hittir hærra skor sigrar leikinn. Ef báðir keppendur skjóta sama skor sigrar sá sem hitti nær miðju)
Úrslitaleikurinn um Íslandsmeistaratitil U18 kvenna:
Í úrslitaleiknum mættust Eva og liðsfélagi hennar Emma Rakel Björnsdóttir. Eva byrjaði leikinn sterkt með sigri í fyrstu lotu 27-24 og tók 2-0 forystu. Stelpurnar jöfnuðu aðra umferð 25-25 og deildu stigunum og staðan 3-1. Eva vann þriðju lotu 27-25 og með 5-1 forystu í leiknum. Emma þurfti að vinna síðustu tvær lotur í röð til að jafna leikinn og knýja fram bráðabana. Í fjórðu lotu áttu stelpurnar báðar frábæra umferð 28-28 og deildu því stigunum og staðan í leiknum því 6-2. Eva hafði tekið sigurinn og sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil í U18 flokki kvenna.
Helga Bjarney Ársælsdóttir úr SFA Egilstöðum tók bronsið
Úrslitaleikurinn um Íslandsmeistaratitil U18 (allir):
Í úrslitaleiknum mættust Eva og Elías Áki Hjaltason úr BFB Kópavogi. Eva byrjaði leikinn mjög sterk með tvær 28 umferðir og tók fyrstu lotu 28-26 og aðra lotu 28-25 og var því 4-0 yfir. Elías náði sigrinum í þriðju og fjórðu lotu 28-25 og 29-25 og jafnaði leikinn 4-4. Aðeins fimmta og síðasta lota leiksins eftir sem myndi ákvarða sigurvegarann og þau búin að skiptast á því að taka sigur í lotum og því margir sem bitu neglru. Eva skaut 27 á móti 25 frá Elías og Eva tók því sigurinn og 2 stigin í síðustu lotunni, og því sigurinn í leiknum 6-4 og tók sinn annan Íslandsmeistaratitil í U18 flokki og sinn fyrsta í U18 óháð kyni.
Helga Bjarney Ársælsdóttir úr SFA Egilstöðum tók bronsið í sambærilega jöfnum brons úrslitaleik 6-4.
Úrslitaleikurinn um Íslandsmeistaratitil U18 félagsliða:
Eva og liðsfélagi hennar Emma Rakel Björnsdóttir í félagsliði Akurs mættu sameiginlegu liði Kópavogs og Egilstaða í úrslitaleiknum. Þar sem Akureyringarnir tóku öruggann sigur í þrem lotum 36-26, 33-24 og 39-31 og tóku því öruggann sigur 6-0.
Samantekt af Íslandsmeistaratitlum
Eva Kristín hefur samtals unnið 10 Íslandsmeistaratitlar ungmenna, að meðtöldum þeim þremur sem hún vann á ÍM U18 um helgina.
- 4 einstaklings Íslandsmeistaratitlar U16 (2 kvenna og 2 unisex)
- 2 einstaklings Íslandsmeistaratitlar U18 (1 kvenna og 1 unisex, í báðum tilfellum fyrsti Íslandsmeistaratitil hennar á ÍM U18 núna)
- 2 félagsliða Íslandsmeistaratitlar U16
- 1 félagsliða Íslandsmeistaratitill U18 (þetta var hennar fyrsti titill á ÍM U18 núna)
- 1 félagsliða Íslandsmeistaratitill U21
Sýnt var beint frá gull úrslitaleikjunum á Archery TV Iceland Youtube rásinni hér:
Nánar er hægt að lesa um Íslandsmót U18 í frétt Bogfimisambands Íslands hér:



