Sóldís Inga Íslandsmeistari U18 og sýndi gífurlegann drengskap

Sóldís Inga Gunnarsdóttir úr BF Boganum Kópavogi keppti á Íslandsmeistaramóti U18 í Fagralundi Kópavogi á laugardaginn

Sóldís var efst í undankeppni ÍM U18 bæði í kvenna og óháð kyni með 621 stig sem er flott skor.

Í gull úrslitum trissuboga kvenna U18 mættust Sóldís Inga Gunnarsdóttir og Elísabet Fjóla Björnsdóttir báðar úr sama félagi. Þar mátti ekki miklu muna en Fjóla tók sigurinn 127-125 í mjög jöfnum leik og tók því Íslandsmeistaratitil U18 kvenna, sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil í íþróttinni! Eva María Einarsdóttir tók bronsið.

Í gull úrslitum trissuboga U18 óháð kyni mættust aftur Sóldís Inga Gunnarsdóttir og Elísabet Fjóla Björnsdóttir báðar úr sama félagi. Þar tók Sóldís hinsvegar mjög öruggan sigur 132-105 og tók sinn annan Íslandsmeistara titil U18 á ferlinum.

Sóldís og Fjóla unnu einnig saman Íslandsmeistaratitilinn í félagsliðakeppni trissuboga U18. Fyrsti félagsliðstitill Fjólu í íþróttinni, fjórði félagsliða titill Sóldísar en annar félagsliðstitilinn í U18 flokki.

Sigti andstæðingsins og liðsfélaga Sóldísar (Fjólu) brotnaði í undankeppni mótsins og Sóldís bauð henni að nota sigtið sitt (eina sigti sem Sóldís var með, af sínum eigin boga) til að andstæðingurinn gæti klárað fyrri umferð undankeppninnar. Above and beyond “fair play” viðburður. Þar sem að Sóldís gat í raun bara tapað á því á meðan andstæðingurinn gat í raun bara grætt á því, og Sóldísi bar engin skylda til að gera það og bauð það af fyrra bragði. Svipað og að skór keppanda í 100m hlaupi eyðileggjist og þú bjóðir honum að deila skónnum sem þú ert í og skiptast á að hlaupa í þeim. Sýnir verulegann karakter, góðmennsku og sportsmanship.

Nánari upplýsingar um Íslandsmót ungmenna og öldunga er hægt að finna í frétt Bogfimisambands Íslands hér:

ÍM ungmenna&öldunga frábært veður og vel skotið