Alfreð Birgisson Íslandsmeistari 50+ um helgina

Alfreð Birgisson úr ÍF Akur Akureyri keppti á Íslandsmeistaramóti 50+ í Fagralundi Kópavogi á sunnudaginn

Alfreð var efstur bæði í keppni um titilinn í 50+ karla og um titilinn 50+ óháð kyni í undankeppni ÍM, með 651 stig.

Í gull úrslitum bæði um 50+ titil karla og 50+ titilinn (óháð kyni) mættust Alfreð og Albert Ólafsson úr BFB Kópavogi.

Alfreð vann Íslandsmeistaratitil karla nokkuð örugglega 135-125

Alfreð vann einnig Íslandsmeistaratitilinn óháð kyni mjög örugglega 140-128. En það felur þó hve jafn leikurinn var að andstæðingurinn skaut framhjá skotmarkinu á síðustu ör leiksins. Strákarnir voru jafnir í þriðju umferð 82-82 og í fjórðu umferð leiddi Alfreð með tveim stigum 111-109, þannig að ef síðasta örin sem fór framhjá hefði verið 10 þá hefði staðan endað 140-138. Ef Alfreð hefði skorað 27 í síðustu umferðinni, eins og hann gerði í mörgum umferðum, þá hefði verið jafntefli og bráðabani. Þannig að leikurinn var mjög jafn þó að enda skor munurinn hafi verið mikill

Þetta var í fyrsta sinn sem Alfreð vinnur Íslandsmeistaratitilinn utandyra í 50+, enda fyrsta ár hans í 50+ flokki, og Alfreð gerði einum betur og tók báða titlana sem voru í boði á ÍM 50+ utandyra. Alfreð hefur því unnið alla 4 Íslandsmeistaratitla 50+ á árinu sem eru í boði í keppnisgreininni, svo kallað “fullt hús titla”.

  • Trissuboga karla 50+ innandyra
  • Trissuboga 50+ (óháð kyni) innandyra
  • Trissuboga karla 50+ utandyra
  • Trissuboga 50+ (óháð kyni) utandyra

Nánari upplýsingar um Íslandsmót ungmenna og öldunga er hægt að finna í frétt Bogfimisambands Íslands hér:

ÍM ungmenna&öldunga frábært veður og vel skotið