Elísabet Fjóla Björnsdóttir úr BF Boganum Kópavogi keppti á Íslandsmeistaramóti U18 í Fagralundi Kópavogi á laugardaginn og á Íslandsmóti U21 á sunnudeginum á sama stað.
Í gull úrslitum trissuboga kvenna U18 mættust Sóldís Inga Gunnarsdóttir og Elísabet Fjóla Björnsdóttir báðar úr sama félagi. Þar mátti ekki miklu muna en Fjóla tók sigurinn 127-125 í mjög jöfnum leik og tók því Íslandsmeistaratitil U18 kvenna, sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil í íþróttinni! Eva María Einarsdóttir tók bronsið.
Í gull úrslitum trissuboga U18 óháð kyni mættust aftur Sóldís Inga Gunnarsdóttir og Elísabet Fjóla Björnsdóttir báðar úr sama félagi. Þar tók Sóldís hinsvegar öruggan sigur 132-105 og tók sinn annan Íslandsmeistara titil U18 á ferlinum. Fjóla tók silfrið og Eva brons.
Sóldís og Fjóla unnu einnig saman Íslandsmeistaratitilinn í félagsliðakeppni trissuboga U18. Fyrsti félagsliðstitill Fjólu í íþróttinni líka.
Sigtið hennar Fjólu brotnaði í undankeppni mótsins, hún var að ströggla í undankeppni mótsins í skori (eðlilega m.v. aðstæður). Þegar að sigtið brotnaði lét hún dómara vita og þá fékk hún tíma til að gera við það (15 mín eða 12 örvar, hvort sem kemur fyrst sem má bæta upp. Equipment failure er bara leyfilegt í undankeppni og aðeins á vissum mótum, ekki leyfilegt á hæsta stigi íþróttarinnar alþjóðlega A/B landsliðsverkefnum og aldrei leyfilegt í útsláttarkeppni, þess vegna eru flestir keppendur á hæstu stigum íþróttarinnar með 2 complete boga sett, oft eitt fyrir innandyra og annað fyrir utandyra og fara svo með báða á öll mót, einn sem primary bogi og hinn sem backup bogi ef eitthvað óvenjulegt skyldi koma upp). Líklegasta ástæða þess að sigtið brotnaði er ofhersla á sigtispinnanum sem var verið að herða á með sexkannti og hægt og rólega með tímanum hefur myndast málmþreyta og komið sprunga í fleyginn sem sigtipinninn krækist í og hann á endanum gefið sig. En það kemur þó ekki að mikilli sök þar sem að Fjóla var búin að panta sér nýtt sigti til að uppfæra í rúmri viku áður en þetta gerðist, þó að það sé ekki komið til landsins enþá. Sóldís (andstæðingur Fjólu á mótinu) sýndi gífurlegan drengskap og bauð að lánaði Fjólu sigtið sitt af sínum eigin boga, sem Gummi stillti svo að Fjóla gæti klárað síðust 4 örvarnar sem hún átti eftir af fyrri umferðinni, á meðan keyrði Ragnar í Bogfimisetrið og náði í backup sigti og Gummi skipti sigtunum svo til baka þegar að Ragnar kom til baka. Þannig að ýmislegt gengur á á mótum þó að oftast skrifi maður ekki um það í fréttir, fannst mér vert að nefna þetta þar sem þetta sýnir vinskapinn í bogfimi 😉
Fjóla keppti einnig á ÍM U21 á sunnudeginum þar sem hún skoraði glæsilegt skor í undankeppni mótsins 643 stig og vann silfur í einstaklingskeppni kvenna U21 og silfur í félagsliðakeppni U21
Nánari upplýsingar um Íslandsmót ungmenna og öldunga er hægt að finna í frétt Bogfimisambands Íslands hér:





