Í föstudagsþættinum á sjónvarpsstöðinni N4 þann 3. júlí sl. var viðtal við Önnu Maríu Alfreðsdóttur og Rakel Arnþórsdóttur. Tilefni viðtalsins var það að þær urðu báðar íslandsmeistarar í bogfimi á íslandsmóti ungmenna utandyra 2020 sem haldið var á Víðistaðatúni í Hafnarfirði um síðustu helgi. Þessi glæsilegi árangur hefur vakið athygli á Norðurlandi þar sem þær keppa báðar fyrir Íþróttafélagið Akur á Akureyri.
Um þennan glæsilega árangur þeirra hefur verið fjallað í greinum hér á Archery.is Anna María varð íslandsmeistari í trissuboga kvenna U18 og Rakel í sveigboga kvenna U21.
Hér er að finna sjónvarpsviðtalið við Önnu Maríu og Rakel á N4.