Salka Þórhalls í 6 sæti einstaklinga og 4 sæti liða bráðabana frá bronsi á NM ungmenna

Salka Þórhallsdóttir úr BF Boganum í Kópavogi keppti með landsliði á Norðurlandameistarmóti Ungmenna í Tampere Finnlandi og endaði í 6 sæti í einstaklingskeppni og 4 sæti í liðakeppni.

Útsláttarleikir einstaklinga

Salka stóð sig ágætlega í undankeppni NM ungmenna miðað við aldur of fyrri störf og endaði í 6 sæti með 213 stig í sveigboga kvenna U21 Open.

Í 8 manna úrslitum mættust Salka og Karólína Karlsdóttir frá Íslandi sem var í 3 sæti í undankeppni NUM og úr varð spennandi leikur. Karó tók fyrstu lotu 15-10, Salka tók aðra lotu 17-14, Karó tók þriðju lotu 16-11 og Salka tók fjórðu lotu 14-10 og staðan í leiknum jöfn 4-4 eftir að skiptast á að taka loturnar. Aðeins ein lota eftir sigurvegarinn myndi halda í undanúrslit og keppa til verðlauna, ef lotan endaði jöfn þyrfti bráðabana til að ákvarða sigurvegara (ein ör nær miðju vinnur). En svo varð ekki í þessu tilfelli, Karó tók sigurinn 19-13 í síðustu lotunni og hélt því áfram í undanúrslit á meðan Salka var slegin út og endaði í 6 sæti á NUM 2026.

Útsláttarleikir liða

Nýlega var breytt í 2 manna liðakeppni á NM ungmenna. Hvert land má skipa mörgum liðum á NM, en ef það eru einhverjir sem eru ekki með lið þá er þeim safnað saman og búið til “Nordic Team” úr þeim. Þannig var það í tilfelli Sölku.

Í undanúrslitum tapaði lið Sölku fyrir aðalliði Danmerkur 6-0, Danmörk gaf ekkert færi á sér í leiknum. Nordic Team Sölku fór því í brons úrslitaleikinn.

Í brons úrslitaleiknum varð hinsvegar úr spennandi keppni þar sem Nordic Team Sölku mætti aðalliði Noregs. Noregur tók fyrstu lotuna 29-6, Sölku lið tók aðra lotu 16-9 og staðan því jöfn 2-2. Sölku lið tók þriðju umferð 23-18 og forystuna 4-2 (8 lotur, 2 stig fyrir að vinna lotu, 1 stig fyrir að jafna lotu, þannig að liðið sem er fyrr að ná 5 stigum í leiknum vinnur, ef það endar í jafntefli 4-4 þá er bráðabani). Lið Noregs þurfti því að vinna síðustu lotu leiksins til að knýja fram bráðabana til að vinna bronsið. Síðasta lotan endaði 27-26 fyrir Norðmönnum og leikurinn endaði því 4-4 jafntefli og bráðabani myndi ákvarða hver tæki bronsið heim. Lið Sölku skoraði 9 stig og lið Noregs 11 stig. Noregur tók því bronsið og lið Sölku endaði í 4 sæti, bráðabana frá bronsi 😉

Nánar er fjallað um NM ungmenna í þessari frétt frá Bogfimisambandi Íslands.

Ragnar, Þórdís og Lóa skara fram úr – Fjórir Norðurlandameistaratitlar og tvö Norðurlandamet á NM ungmenna

Áfram Ísland!!