Anna Guðrún Yu Þórbergsdóttir úr BF Boganum í Kópavogi keppti með landsliði á Norðurlandameistarmóti Ungmenna í Tampere Finnlandi og endaði í 7 sæti í einstaklingskeppni og 10 sæti í liðakeppni.
Útsláttarleikir einstaklinga
Anna stóð sig flott í undankeppni NM ungmenna og endaði í 7 sæti með 502 stig í sveigboga kvenna U21. Anna skoraði nægilega hátt til að sitja hjá í 32 manna úrslitum og hélt því beint í 16 manna úrslit.
Í 16 manna úrslitum mættust Anna og Solveig Nilsen frá Noregi sem var í 6 sæti í undankeppni NUM. Anna tók fyrstu lotu leiksins 22-21 og aðra lotuna 24-21 og þriðju lotuna 24-16 og náði yfirgnæfandi sigri 6-0 í leiknum gegn sterkari keppanda. Heiftarlega vel gert hjá Önnu sem hélt því áfram í 8 manna úrslit.
Í 8 manna úrslitum mættust Anna og Jade Helala frá Finnlandi sem var í þriðja sæti undankeppni NM. Finnska tók fyrstu lotuna 25-22, Anna tók aðra lotu leiksins 23-19 og staðan því jöfn 2-2, en svo átti Anna tvær ólukku umferðir og Finnska tók næstu tvær lotur 26-16 og 23-17 og því 6-2 sigur í leiknum og hélt áfram í verðlaunaleikina. Anna endaði því í 7 sæti í einstaklingskeppni NM ungmenna 2026. Samt vel gert hjá Önnu að komast í 8 manna úrslit
Útsláttarleikir liða
Nýlega var breytt í 2 manna liðakeppni á NM ungmenna. Baldur Freyr Árnason og Anna Guðrún Yu Þórbergsdóttir bæði úr BF Boganum enduðu saman í liði sem lið 1 frá Íslandi sem var í 11 sæti í undankeppni NM (hvert land má skipa mörgum liðum á NM).
Í 16 liða úrslitum mættu krakkarnir liði 2 frá Noregi sem var í 6 sæti í undankeppni NM. Norðmenn tóku fyrstu lotu 37-21 og aðra lotu 36-32 og staðan því 4-0 fyrir Noregi. En liðin jöfnuðu þriðju lotuna 34-34, en það var ekki nóg þar sem að 4 lotur eru í liðakeppni og aðeins 8 stig í pottinum og því sigrar liðið sem er fyrr að ná 5 stigum. Leikurinn endaði því 5-1, Norðmenn héldu í 8 liða úrslit og okkar krakkar enduðu í 10 sæti í liðakeppni á NUM 2026.
Nánar er fjallað um NM ungmenna í þessari frétt frá Bogfimisambandi Íslands.
Áfram Ísland!!

