Baldur Freyr í 15 sæti einstaklinga og 10 sæti liða á NM ungmenna

Baldur Freyr Árnason úr BF Boganum í Kópavogi keppti með landsliði á Norðurlandameistarmóti Ungmenna í Tampere Finnlandi og endaði í 15 sæti í einstaklingskeppni og 10 sæti í liðakeppni.

Útsláttarleikir einstaklinga

Baldur stóð sig ágætlega í undankeppni NM ungmenna og endaði í 13 sæti með 485 stig í sveigboga karla U21. Baldur skoraði nægilega hátt til að sitja hjá í 32 manna úrslitum og hélt því beint í 16 manna úrslit.

Í 16 manna úrslitum mættust Baldur og Leo Nordstedt frá Svíþjóð sem var í 4 sæti í undankeppni NUM. Það var tæpt í fyrstu lotu þar sem Svíjinn tók lotuna 22-21 og 2-0 forystu. Svíjinn tók svo aðra lotu 25-21 og þriðju lotu 26-18 og leikurinn endaði því 6-0. Baldur sleginn út og endaði í 15 sæti einstaklinga.

Útsláttarleikir liða

Nýlega var breytt í 2 manna liðakeppni á NM ungmenna. Baldur Freyr Árnason og Anna Guðrún Yu Þórbergsdóttir bæði úr BF Boganum enduðu saman í liði sem lið 1 frá Íslandi sem var í 11 sæti í undankeppni NM (hvert land má skipa mörgum liðum á NM).

Í 16 liða úrslitum mættu krakkarnir liði 2 frá Noregi sem var í 6 sæti í undankeppni NM. Norðmenn tóku fyrstu lotu 37-21 og aðra lotu 36-32 og staðan því 4-0 fyrir Noregi. En liðin jöfnuðu þriðju lotuna 34-34, en það var ekki nóg þar sem að 4 lotur eru í liðakeppni og aðeins 8 stig í pottinum og því sigrar liðið sem er fyrr að ná 5 stigum. Leikurinn endaði því 5-1, Norðmenn héldu í 8 liða úrslit og okkar krakkar enduðu í 10 sæti í liðakeppni á NUM 2026.

Nánar er fjallað um NM ungmenna í þessari frétt frá Bogfimisambandi Íslands.

Ragnar, Þórdís og Lóa skara fram úr – Fjórir Norðurlandameistaratitlar og tvö Norðurlandamet á NM ungmenna

Áfram Ísland!!