Ragnar Smári Jónasson úr BFB Kópavogi var að keppa á Evrópubikarmóti ungmenna í Ruse Búlgaríu í U21 flokki bæði berboga og trissuboga. Í trissuboga karla endaði hann í 10 sæti í blandaðri liðakeppni og 12 sæti í einstaklingskeppni og í berboga U21 karla þar sem hann tók brons í einstaklingskeppni og silfur í liðakeppni. Ragnar flaug beint af Veronicas Cup í Slóveníu, en ýmis vandamál komu upp tengt töskum á leið á Evrópubikarmótið og Ragnar fékk því ekki búnaðinn sinn fyrr en daginn sem undankeppni mótsins byrjaði.
Einstaklingskeppni karla
Ragnar vann brons í berboga U21 karla í leik á móti Kristiyan Iliev frá heimaþjóðinni. Það munaði svo sem ekki miklu að Ragnar myndi næla sér í verðlaun einnig í einstaklingskeppni í trissuboga karla, en þar var hann sleginn út í 16 manna úrslitum með littlum mun 144-142 og endaði því í 12 sæti í trissuboga U21 karla. Þetta var síðasta ár Ragnars í U21 flokki og fyrsta sinn sem hann vinnur til einstaklingsverðlauna á Evrópubikarmóti, en hann hefur unnið áður til liðaverðlauna.
Mixed team U21 (Blandað lið 1kk+1kvk)
Í blandaðri liðakeppni keppti Ragnar í tveim liðum. Berboga liðinu (Lóa og Ragnar) sem tóku silfrið á mótinu eftir tap gegn heimaþjóðinni í gull úrslitaleiknum 6-0 (leik sem var sýnt beint frá á Youtube rás World Archery Europe). Og í trissuboga liðinu (Ragnar og Þórdís) sem endaði í 10 sæti eftir að vera slegin út af liði Rúmeníu í 16 liða úrslitum. Skor liðana var mjög jafnt í undankeppni og því nánast 50/50 hver myndi taka sigurinn. En lukkan var Rúmeníu megin að þessu sinni og þeir tóku sigurinn 147-142 og Ísland endaði því í 10 sæti á mótinu.
Ragnar var einnig í þjálfaraboxinu hjá trissuboga U18 kvenna liðinu í þeirra brons úrslitaleik gegn Ítalíu.
Nánari fréttir af mótinu er hægt að finna í frétta Bogfimisambands Íslands hér:










