Lóa Margrét sigrar Evrópubikarmótið

Lóa Margrét Hauksdóttir úr BFB Kópavogi var að keppa á Evrópubikarmóti ungmenna í Ruse Búlgaríu 1-6 júní í U21 flokki í berboga U21 kvenna þar sem hún tók gullið í einstaklingskeppni og silfur í liðakeppni. Vel af sér vikið hjá Lóu og við óskum henni til hamingju með sigurinn.

 

Lóa vann gullið í einstaklingskeppni berboga U21 kvenna í úrslita leik á móti Daira-Maria Valova frá heimaþjóðinni Búlgaríu. Daria vann EM innandyra í febrúar á meðan Lóa endaði í 4 sæti á sama móti og því útlit fyrir að það yrði harður bardagi um gullið milli þeirra. En svo varð ekki, Lóa átti góðan leik og móti óvænt lökum leik frá Evrópumeistaranum. Lóa tók sigurinn í úrslitaleiknum örugglega 6-0 og tók einu gull verðlaun Íslands á Evrópubikarmótinu.

Þetta er í fyrsta sinn sem Lóa keppir á Evrópubikarmóti og því einnig í fyrsta sinn sem hún vinnur til einstaklingsverðlauna á Evrópubikarmóti, en hún hefur áður unnið til verðlauna á EM innandyra bæði í einstaklings og liðakeppni.

 

Ísland skipaði einnig berboga mixed team (blönduðu liði) á mótinu og í berboga liðinu voru Lóa og Ragnar sem tóku silfrið á mótinu eftir tap gegn heimaþjóðinni í gull úrslitaleiknum 6-0.

Sýnt var beint frá einstaklings og liða úrslitaleikjum Lóu á Youtube rás World Archery Europe.

 

Nánari fréttir af mótinu er hægt að finna í frétta Bogfimisambands Íslands hér:

Ísland með 3 verðlaun á Evrópubikarmóti ungmenna