Ragnar Smári með 4 Íslandsmeistaratitla og 4 Íslandsmet á Íslandsmóti ungmenna

Ragnar Smári Jónasson gerði vel á Íslandsmóti ungmenna í byrjun febrúar, þar tók hann meðal annars fjóra Íslandsmeistaratitla, sló tvö einstaklings Íslandsmet og átti hlutdeild í tveim Íslandsmetum félagsliða. 4 af 18 Íslandsmetum sem voru slegin á mótinu átti Ragnar hlutdeild í.

Íslandsmeistaratitlar sem Ragnar Smári vann til á Íslandsmóti ungmenna:

  1. Trissubogi U18 karla Ragnar Smári Jónasson
  2. Trissubogi U18 Ragnar Smári Jónasson (keppni óháð kyni)
  3. Trissubogi U18 karla lið BF Boginn (Ragnar Smári Jónasson og Ísar Logi Þorsteinsson)
  4. Trissubogi U21 karla lið BF Boginn (Ragnar Smári Jónasson og Ísar Logi Þorsteinsson)

Íslandsmet sem Ragnar Smári sló á Íslandsmóti ungmenna: 

 

Trissubogi U18 WA undankeppni karla 554 stig (var 548)
Ragnar Smári Jónasson BFB

Trissubogi útsláttarkeppni U18 WA karla 138 stig (var 136)
Ragnar Smári Jónasson BFB

Trissubogi undankeppni U18 karla lið 1098 stig (var 1056)
BF Boginn Ísar Logi Þorsteinsson + Ragnar Smári Jónasson

Trissubogi undankeppni U21 karla lið 1084 stig (var 1072)
BF Boginn Ísar Logi Þorsteinsson + Ragnar Smári Jónasson

Ragnar átti algerann sigur á Íslandsmóti U18 á laugardeginum, en hann fann til í maga á sunnudeginum á Íslandsmóti U21 og lauk því ekki keppni þar. En þar var Ragnar þegar kominn í gull úrslita leik trissuboga karla U21 og vann því silfur þar, ásamt því að vinna silfur í blandaðri liðakeppni U21. Einnig tók Ragnar viðbótar brons verðlaun í blandaðri liðakeppni U18 deginum áður.

Þannig að heildar hollið af árangri er 4 titlar, 4 met, 2 silfur og 1 brons. Ætli flestir veiðimenn væru ekki vel sáttir við það holl.

Ragnar var áætlaður til þátttöku á Evrópumeistaramóti U21 innandyra í Tyrklandi í febrúar. En EM var því miður aflýst vegna hamfarana sem hafa verið í gangi í Tyrklandi síðustu vikur eftir að jarðskjálftahrina reið yfir landið.

Íslandsmót ungmenna innanhúss 2023 var skipt niður í tvö mót sem haldin voru í Bogfimisetrinu. Íslandsmót U16/U18 sem haldið var á laugardeginum 4 febrúar og Íslandsmót U21 sem haldið var á sunnudeginum 5 febrúar. Samtals var keppnin sjálf lengri en 22 klukkutímar yfir þessa tvo daga, til viðbótar við tímann sem tekur að undirbúa og ganga frá. Því vildi BFSÍ koma sérstaklega á framfæri sínum þökkum til starfsfólks BFSÍ og öllum sjálfboðaliðum sem aðstoðuðu við hald mótsins fyrir vel heppnað mót sem gekk frábærlega í krefjandi aðstæðum.

Fjöldi keppenda á Íslandsmótum ungmenna er byrjaður að aukast aftur sem er jákvætt, en þátttaka er enn 9% lægri en var á síðasta Íslandsmóti ungmenna fyrir kórónuveirufaraldurinn. Það er því að taka aðeins lengri tíma en áætlað var að koma þátttöku aftur í jafnvægi og fjölgun keppenda. 40 keppendur kepptu á mótinu að þessu sinni. Niðurstöður mótsins voru birtar í úrslitabirtingakerfi alþjóðabogfimisambandsins ianseo og er hægt að finna á heimasíðu þeirra ianseo.net. Búið er að uppfæra niðurstöður og ranking lista í mótakerfi BFSÍ.

Sýnt var beint frá mótinu á Youtube rásinni Archery TV Iceland 

Niðurstöður mótsins er hægt að finna á úrslitabirtingakerfi alþjóðabogfimisambandsins ianseo  og í mótakerfi BFSÍ 

Mögulegt er að finna myndir af mótunum á smugmug

40 titlar veittir og 18 Íslandsmet slegin á Íslandsmótum ungmenna um helgina