Ragnar Smári Jónasson með gull á EM

Ragnar Smári Jónasson  var að ljúka keppni á Evrópumeistaramóti U21 innandyra í Varazdin Króatíu. Ragnar var að keppa í tveim keppnisgreinum, trissuboga og berboga og hann því með tvær niðurstöður í bæði einstaklingskeppni og liðakeppni.

Ragnar komst áfram í útsláttarleiki liða og einstaklinga í bæði trissuboga og berboga eftir undankeppni EM á þriðjudaginn.

Í berboga einstaklingskeppni U21 á EM var Ragnar sleginn út í 8 manna úrslitum gegn Bastien Bardo Causse frá Frakklandi 7-3 og Ragnar endaði því í 7 sæti í einstaklingskeppni sveigboga U21 á EM. Berboga karla U21 liðið tók gullið á mótinu.

Trissuboga karla U21 liðið, sem Ragnar var einnig partur af, voru slegnir út í jöfnum leik gegn Rúmeníu í 8 liða úrslitum 223-220 Íslenska liðið endaði því í 5 sæti á EM og Ragnar því ekki langt frá því að vera að keppa um önnur verðlaun á EM.

Í einstaklingskeppni trissuboga U21 á EM var Ragnar sleginn út í 32 manna leikjum gegn Rares Daniel Alexandrescu frá Rúmeníu í jöfnum leik sem endaði 145-143 og Ragnar endaði því í 17 sæti í einstaklingskeppni trissuboga U21 á EM.

34 Íslenskir keppendur og 11 Íslensk lið voru skráð til keppni frá Íslandi í undankeppni Evrópumeistaramótsins sem var á þriðjudagin síðastliðinn. Þetta er stærsti hópur Íslands til dags á EM og því vægast sagt mikið sem er búið að ganga á í vikunni. EM var haldið 19-24 febrúar og Íslensku keppendurnir voru að lenda heima á Íslandi í dag.

Nánari upplýsingar um gengi annarra keppenda Íslands á EM er hægt að finna í fréttum á archery.is og bogfimi.is