Auðunn Andri Jóhannesson með gull á EM

Auðunn Andri Jóhannesson úr BFHH Hafnarfirði var að ljúka keppni á Evrópumeistaramóti U21 innandyra í Varazdin Króatíu, þar sem hann endaði í 1 sæti í liðakeppni og 7 sæti einstaklingskeppni.

Auðunn komst áfram eftir undankeppni EM á þriðjudaginn.

Í berboga einstaklingskeppni U21 á EM var Auðunn sleginn út í 8 manna úrslitum gegn Ludvig Rohlin frá Svíþjóð 6-0 og Auðunn endaði því í 7 sæti í einstaklingskeppni berboga U21 á EM. Berboga karla U21 liðið tók gullið á mótinu.

34 Íslenskir keppendur og 11 Íslensk lið voru skráð til keppni frá Íslandi í undankeppni Evrópumeistaramótsins sem var á þriðjudagin síðastliðinn. Þetta er stærsti hópur Íslands til dags á EM og því vægast sagt mikið sem er búið að ganga á í vikunni. EM var haldið 19-24 febrúar og Íslensku keppendurnir voru að lenda heima á Íslandi í dag.

Nánari upplýsingar um gengi annarra keppenda Íslands á EM er hægt að finna í fréttum á archery.is og bogfimi.is