Lóa Margrét Hauksdóttir með 2 silfur á EM

Lóa Margrét Hauksdóttir út BFB Kópavogi var að ljúka keppni á Evrópumeistaramóti U21 innandyra í Varazdin Króatíu, þar sem hún endaði í 2 sæti í liðakeppni og 2 sæti einstaklingskeppni.

Lóa komst áfram í útsláttarleiki liða og einstaklinga U21 berboga eftir undankeppni EM á þriðjudaginn.

Berboga kvenna U21 liðið, sem Lóa var partur af, keppti í gull úrslitaleik EM þar sem þær mættu liði Bretlands. Stelpurnar stóðu sig vel og getustig beggja liða er sambærilegt þær bresku áttu bara betri dag. Leikurinn endaði 6-0 fyrir Bretlandi. Íslenska liðið tók því silfur á EM, sem er hæsta sæti sem Ísland hefur náð til dags í berboga kvenna U21. Gull úrslitaleiknum var streymt í beinni og hægt að sjá hann hér fyrir neðan.

Í berboga einstaklingskeppni U21 á EM vann Lóa sig upp í gull úrslita leikinn gegn Isabel Plowman frá Bretlandi þar sem að ekki miklu munaði á því að Lóa tæki Evrópumeistaratitilinn. Leikurinn var mjög jafn en endaði 6-4 fyrir þeirri Bresku og Lóa tók því silfrið. Sýnt var beint frá þessum leik, en eitthvað fór úrskeiðis hjá Evrópusambandinu í streyminu fyrri part einstaklings úrslita og því er ekki lengur mögulegt að horfa á einstaklingsleikina á Youtube rás þeirra. Vonast er til þess að þeir lagi það á einhverjum tímapunkti.

Þetta var fyrsta alþjóðlega mót Lóu þannig að hún á mikla framtíð í þessari íþrótt, eins og allar berboga U21 stelpurnar okkar.

34 Íslenskir keppendur og 11 Íslensk lið voru skráð til keppni frá Íslandi í undankeppni Evrópumeistaramótsins sem var á þriðjudagin síðastliðinn. Þetta er stærsti hópur Íslands til dags á EM og því vægast sagt mikið sem er búið að ganga á í vikunni. EM var haldið 19-24 febrúar og Íslensku keppendurnir voru að lenda heima á Íslandi í dag.

Nánari upplýsingar um gengi annarra keppenda Íslands á EM er hægt að finna í fréttum á archery.is og bogfimi.is