Ari Björk varði Íslandsmeistaratitil sinn utandyra og vann sinn fyrsta titil óháð kyni

Ari Emin Björk úr Íþróttafélaginu Akri á Akureyri vann sinn þriðja Íslandsmeistaratitil karla í röð á Íslandsmeistaramótinu utandyra 21 júní síðastliðinn í Fagralundi Kópavogi. Þetta voru því annar og þriðji Íslandsmeistaratitill sem Ari hefur unnið frá upphafi í meistaraflokki, en Ari vann sinn fyrsta titil árið 2025.

Undankeppni ÍM sveigboga á sunnudegi:

Ari var efstur í undankeppni ÍM í sveigboga karla með nýtt personal best í keppni 596 stig töluvert fyrir ofan annað sæti sem var með 526 stig og því talinn sigurstranglegastur í karla flokki. Í undankeppni óháð kyni var Ari í öðru sæti en ekki með miklum mun þannig að báðir titlarnir voru innan greipa.

Keppni um einstaklings Íslandsmeistaratitilinn sveigboga karla:

Ari átti frekar auðvelda vegferð í útsláttarleikjum karla, þar sem hann tapaði aðeins 2 stigum í 8 manna, undanúrslitum og gull úrslitum. Í gull úrslitaleiknum mættust Ari og margfaldur Íslandsmeistari Ragnar Þór Hafsteinsson úr BF Boganum í Kópavogi, þar sem Ari vann leikinn örugglega 6-0 og tók sinn annan Íslandsmeistaratitil í röð utandyra.

Baldur Freyr Árnason tók bronsið í úrslitaleik gegn Jóhanni Baldri Jóhannssyni báðir úr BFB Kópavogi.

Keppni um einstaklings Íslandsmeistaratitilinn Sveigboga óháð kyni:

Ari sat hjá í 16 manna úrslitum í keppni um titilinn óháð kyni. Vann svo leik sinn í 8 manna úrslitum 6-0 og undan úrslitaleikinn sinn nokkuð örugglega líka 7-1 og hélt því í gull úrslit.

Í úrslitaleiknum mættust Ari og Marín Aníta Hilmarsdóttir úr Bogfimifélaginu Boganum í Kópavogi sem var efst í undankeppni ÍM og nýlega búin að slá Íslandsmetið, Ari var því underdog í leiknum en ekki með miklum mun. Ari tók fyrstu lotuna 26-22 og 2-0 forystu í leiknum, og jók svo forskotið 4-0 í annarri lotu með 28-26 sigri í lotunni. Marín vann þriðju lotu 25-23 og staðan 4-2. Þau jöfnuðu fjórðu lotu 25-25 og staðan því 5-3. Marín þurfti því að vinna síðustu lotuna til að jafna leikinn og knýja fram bráðabana, en Ari leyfði því ekki að gerast og tók glæsilega 29 lotu á móti 26 frá Marín. Ari tók því sigurinn 7-3 og tók sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil óháð kyni og með því braut hann þriggja ára sigurröð Marínar um titilinn óháð kyni.

Valgerður Hjaltested BFB Kópavogi tók bronsið í úrslitaleik gegn Evu Kristínu Sólmundsdóttir úr ÍFA Akureyri.

Samantekt af árangri:

  • Íslandsmeistari sveigboga óháð kyni – Ari Emin Björk – ÍF Akur Akureyri
    • Silfur Marín Aníta Hilmarsdóttir
    • Brons Valgerður E. Hjaltested
  • Íslandsmeistari sveigboga karla – Ari Emin Björk – ÍF Akur Akureyri
    • Silfur Ragnar Þór Hafsteinsson BFB
    • Brons Baldur Freyr Árnason BFB

Mögulegt er að sjá nánari upplýsingar um ÍM í fréttum á bogfimi.is

Marín brýtur 7 titla sigurröð Valgerðar, Ari fyrsti karl sem vinnur titil óháð kyni og Kópavogsmenn taka félagsliðatitilinn á ÍM í sveigboga utandyra 2026