Ragnar Smári Jónasson úr Bogfimifélaginu Boganum í Kópavogi endaði í 18 sæti með trissuboga karla landsliðinu á Evrópumeistaramótinu utandyra í Antalya Tyrklandi í vikunni og munaði ekki miklu að þeir kæmust í 16 liða úrslit. Ragnar keppti einnig í blandaðri liðakeppni þar sem hann endaði í 22 sæti. Hann endaði 67 sæti í einstaklingskeppni EM og náði lágmörkum fyrir Evrópuleika annað mótið í röð.
Einstaklingskeppni EM
Í undankeppni einstaklinga var Ragnar með flott skor í fyrri umferðinni 345 stig en aðeins lægra í seinni umferðinni 331 stig. Ragnar endaði í 67 sæti með 676 stig í undankeppni EM, sem er hæsta skor sem Íslenskur trissuboga karl hefur náð á EM, þó að það sé langt frá besta skori Ragnars. Veður og aðrir þættir hafa að sjálfsögðu áhrif. 104 keppendur halda áfram á EM í útsláttarleiki.
Á EM í 104 manna leikjum mætti hann Rik Snedler frá Niðurlöndum í mjög spennandi leik. Hollenski byrjaði yfir eftir fyrstu umferð leiksins 28-29. Ragnar átti svo laka aðra umferð 26 á móti 28 frá Rik og hann jók því forskotið í 3 stig og ekki gott útlit fyrir að Ragnar gæti sigrað leikinn. En í þriðju umferð skoraði Ragnar fullkomið skor 30 á móti lakri umferð frá Rik og Ragnar snéri leiknum við í 1 stigs forskot, sem var ótrúlegt. Í fjórðu umferð náði Rik stiginu til baka 28-29 og jafnaði leikinn 112-112 og aðeins fimmta og loka umferð leiksins eftir. Þar kom Rik þó sterkari inn með fullkomið skor 30 á móti 29 frá Ragnari og Rik hélt því áfram á EM á meðan Ragnar var sleginn út og endaði í 67 sæti á EM utandyra 2026 í einstaklingskeppni. Súrt að detta snemma úr keppni sérstaklega þegar að munurinn er lítill. En svona er þetta, Ragnar var ekki að skjóta illa og báðir strákarnir á svipuðu getustigi, Rik átti bara betri dag.
Liðakeppni EM
Í undankeppni EM í liðakeppni skoruðu strákarnir okkar í trissuboga karla liðinu 1970 stig sem jafnar núverandi landsliðsmet trissuboga karla frá Smáþjóðaleikunum 2017 og er hæsta skor sem trissuboga karla lið hefur náð á EM utandyra til dags. Þeir enduðu í 19 sæti í undankeppni EM 24 efstu lið halda áfram á EM og okkar strákar héldu því áfram í útsláttarkeppni EM.
Þar mættu strákarnir okkar Belgíu í fyrsta leik í 24 liða úrslitum. Leikurinn var æsispennandi. Belgar byrjuð með eins stigs forskot eftir fyrstu umferð 55-54. Liðin jöfnuðu aðra umferð 55-55 og Belgar leiddu því en með einu stigi í “hálfleik”. Í þriðju umferð skutu Belgar hinsvegar frábæra umferð 58 á móti 55 frá Íslandi og juku forskotið í 4 stig. En okkar menn náðu að minnka muninn í síðustu umferðinni 54-53. En það var ekki nóg og Belgar tóku því sigurinn 221-218 og héldu áfram í 16 liða úrslit. Ísland endaði í 19 sæti í trissuboga karla liða á EM utandyra 2026. Vel gert hjá okkar strákum og fúlt að Belgar náðu einni góðri umferð, en svona er það bara andstæðingarnir stóðu sig bara betur og vel gert hjá þeim líka.
Blönduð liðakeppni EM (Mixed team)
Í undankeppni trissuboga blandaðra liða (mixed team) náði hæsta skori Íslands á EM til dags með 1341 stig en hæsta var áður 1339 stig frá EM 2022. Framför sem er frábær, en bæði Þórdís og Ragnar voru að skora undir sínu besta í undankeppni og nóg af stigum á borðinu, þetta met mun því vafalaust hækka mikið á næstu árum. Þau enduðu í 23 sæti í undankeppni EM 24 efstu lið halda áfram á EM og okkar fólk hélt því áfram í útsláttarkeppni EM.
Þar mættust Ísland og Króatía í 24 liða úrslitum. Leikurinn byrjaði vel og bæði lið skoruðu 38 á fyrstu umferð. Í annarri umferð var vindurinn byrjaður að aukast, farið að dropa úr himni og heyrast í þrumum í nánd við völlinn þar tók Króatía 36 á móti 34 frá Íslandi og Króatía tók því 74-72 forystu eftir hálfan leik. Áður en að þriðja umferðin byrjaði opnuðust himnarnir svo alveg og sturtuðu yfir keppendur og þrumuveðrið færðist of nálægt vellinum til þess að öruggt væri að halda áfram.
Mótið var því stoppað í hálfleik á meðan beðið var eftir að þrumuveðrið færðist lengra frá. Eftir um 10 mínútna hlé þar sem Íslendingar voru búnir að lána bæði Grikklandi og Svíþjóð allar sínar auka regnhlífar hófust 24 liða leikir aftur með engum æfingarumferðum. Króatía voru fljótir að ná sér á strik aftur með 39 umferð en Ísland gerði það ekki með 34 umferð. Krótía leiddi því 113-106 og nokkuð ljóst að leiknum væri lokið. Í síðustu umferðinni skoraði Ísland 35 á móti 37 frá Króatíu, 141-150 var loka niðurstaðan, Króatía hélt í 16 liða úrslit og Ísland var slegið út og endaði í 22 sæti EM utandyra 2026 í blandaðri liðakeppni.
Nánar er fjallað um EM og aðra keppendur í þessari frétt Bogfimisambands Íslands:
Undankeppni EM gekk vel, en leikirnir á EM ekki okkar keppendum í vil að þessu sinni













